Work

Orsök skautunar?: Íhaldssöm viðbrögð við réttindabaráttu

Year: 2020
Type: dissertation
Abstract: Réttindabaráttur eru mikilvægur þáttur í mannkynssögunni. Árangur af ýmsu tagi hefði ekki náðst nema væri vegna baráttu ýmissa hópa fyrir sínum réttindum. Í þessari ritgerð verður farið yfir tvær mikilvægar réttindabaráttur í Bandaríkjunum sem áttu sér stað á sjöunda og áttunda áratug síðustu aldar, annars vegar réttindi kvenna þar sem athyglinni er beint að réttinum til þungunarrofs og hins vegar réttindi samkynhneigðra. Meginmarkmið ritgerðarinnar er að athuga hvort þessar baráttur hafi verið orsök skautunar í bandarískum stjórnmálum og bandarísku samfélagi. Eftir fræðilega umfjöllun sem á við um þetta tilvik er farið yfir hvernig viðbrögð stjórnmálamanna og almennings var við þessum auknu kröfum baráttuhópanna og hvernig þau tóku virkan þátt í því að mótmæla þeim réttindum sem var krafist. Einnig er skoðað hvaða ávinningar unnust í þessari baráttu og hverjir ekki. Þessar baráttur sem er farið yfir í ritgerðinni vöktu mikla athygli og áhrif þeirra leiddi til þess að almenningur skiptist í tvær fylkingar sem myndaði skautun í samfélaginu. Í niðurstöðunum leggur höfundur á það mat að þessar réttindabaráttur spiluðu stórt hlutverk í aukinni skautun í bandarískum stjórnmálum og í bandarísku samfélagi.
Source: Skemman
Author: Elísabet Bragadóttir
Language: Icelandic
Subfield: Gender Studies
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6986153729
Cites: 3
Cited by:
Related to: 10