Year: 2025
Type: dissertation
Abstract: Nemendur af erlendum uppruna í íslenskum grunnskólum hafa aldrei verið fleiri en nú, en haustið 2023 var hlutfall þeirra um 15,5% (Hagstofa Íslands, 2024). Hérlendis er íslenska ríkjandi mál og skiptir það því miklu að hafa gott vald á henni til að ná árangri í námi og starfi. Tilgangur ritgerðarinnar er að kanna stöðu íslensks orðaforða tvítyngdra barna í grunnskóla á Íslandi og að benda á leiðir til að auka hann, enda skiptir það miklu fyrir íslenskt þjóðfélag að þessi börn fái sömu tækifæri og aðrir til náms og til að leggja sitt af mörkum í framtíðinni. Rýnt er í rannsóknir á tvítyngdum börnum í grunnskóla og sagt frá helstu niðurstöðum þeirra. Einnig eru rannsóknir á tvítyngdum börnum í leikskóla skoðaðar, en orðaforði barna þar gefur sterka vísbendingu um stöðu þeirra í framtíðinni. Niðurstöður ritgerðarinnar sýna að staða íslensks orðaforða tvítyngdra barna í grunnskóla á Íslandi er mjög slæm. Orðaforði þeirra er mun minni en orðaforði eintyngdra íslenskra jafnaldra og heldur munurinn áfram að vaxa út öll grunnskólaárin og eru helstu ástæður þess raktar. Nokkrar vænlegar aðferðir til að auka orðaforða þessara barna eru lagðar til, þær skoðaðar nánar og kostum þeirra lýst.
Source: Skemman
Author: Stefanía Sigurðardóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Education
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
SDG: Quality education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6986305461
