Year: 2020
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Inngangur: Líkamleg viðmið í kvennaknattspyrnu geta verið mjög mikilvægur hluti af þjálfun leikmanna. Þau geta hjálpað leikmönnum að sjá hvar þeir standa þegar kemur að líkamlegri getu í samanburði við leikmenn á sama aldri. Það auðveldar þeim að setja sér markmið og eiga því auðveldara með að vaxa sem leikmenn. \nMarkmið: (i) að búa til viðmið úr líkamlegum prófum fyrir knattspyrnukonur á aldrinum 14-18 ára í loftháðri- og loftfirrtri getu, og skotkraft, (ii) að sjá hvort líkamleg geta getur breyst eftir aldri og (iii) að búa til plaggat fyrir þjálfara og knattspyrnustelpur á Íslandi með upplýsingum um viðmið og lýsingu á prófum. \nAðferð: Gerðar voru líkamlegar mælingar á knattspyrnustelpum á aldrinum 14-18 ára (15.08±1.23). Hver þátttakandi var mældur í hæð og þyngd, 5x30m sprett prófi, Countermovement jump prófi, skotkraft, Illinois agility prófi, og Yo-Yo IE2 þolprófi. Líkamleg viðmið voru búin til eftir aldri: 14 ára (n=38), 15 ára (n=107), 16 ára (n=83), 17 ára (n=31) og 18 ára (n=42). \nNiðurstöður: Líkamleg viðmið sýndu að 17 ára leikmenn í Framúrskarandi hóp sýndu fram á bestu niðurstöður í loftfirrtum prófum. 18 ára leikmenn í Framúrskarandi hóp sýndu fram á bestu niðurstöður í loftháðum prófum og skotkrafti. Það var marktækur munur á milli aldurshópa í skotkrafti, Illinois prófi, Yo-Yo prófi, og hæð og þyngd. \nÁlyktanir: Viðmiðin sýndu að líkamleg geta eykst með aldri. Loftháð geta eykst með hverjum aldursflokki en loftfirrt geta eykst til 17 ára en virðist svo staðna við 18 ára aldur. \nLeitarorð: frammistaða, líkamleg geta, líkamleg próf, viðmið, hraði, stökkkraftur, skotkraftur, snerpa, loftháð þol, loftfirrt.
Source: Skemman
Institution: Reykjavík University
Language: Icelandic
Subfield: Orthopedics and Sports Medicine
Field: Medicine
Domain: Health Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6986390577
