Rafrænt einelti á skólatíma : algengi þess meðal nemenda í 6., 8. og 10. bekk grunnskóla
Year: 2019
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Rafrænt einelti er vel þekkt hugtak í samfélaginu og varð til er rafræn tækni ruddi sér til rúms. Það hefur verið rannsóknarefni margra fræðimanna síðustu árin, ásamt birtingarmyndum þess og boðleiðum. \nMarkmið rannsóknarinnar var að skoða algengi rafræns eineltis á skólatíma meðal nemenda í 6., 8. og 10. bekk. Notuð var megindleg aðferð þar sem hún hentar vel þegar skoða þarf meðaltöl þess sem hægt er að telja, mæla og vega. Hún er einnig hentug þar sem verið er að lýsa ástandi ákveðins hóps. Stuðst var við spurningalista HBSC – Heilsa og lífskjör skólanema og stýrði markmið rannsóknarinnar því hvaða spurningar voru nýttar. \n Niðurstöðurnar leiddu í ljós að um 4,6% nemenda, eða 47,4% þeirra sem telja sig verða fyrir rafrænu einelti, verða fyrir því á skólatíma eða bæði á skólatíma og utan hans. Einnig mátti sjá að 2,2% stúlkna eða 44,2% þeirra sem höfðu orðið fyrir rafrænu einelti töldu sig verða fyrir því á skólatíma og bæði á skólatíma og utan hans, 2,0% eða 48,3% drengja og 0,4% eða 75,0% af kynferðinu annað. Algengara var að 13 – 15 ára nemendur væru bæði gerendur og þolendur og eru drengir líklegri en stúlkur til að sinna hlutverki geranda, þar sem 3,3% drengja og 1,5% stúlkna nýta rafræna miðla til að leggja nemanda í einelti á skólatíma og bæði á skólatíma og utan hans. \nRannsóknin er sú fyrsta sinnar tegundar, svo vitað sé til, þar sem kannað er rafrænt einelti á skólatíma bæði hérlendis og erlendis. Hún gefur vísbendingar um hjá hvaða aldurshópum rafræna eineltið er algengast, hvort mikill munur sé á milli kynja sem þolendur annars vegar og gerendur hins vegar og hvar nemendur eru staðsettir er eineltið á sér stað. Úr niðurstöðum má einnig lesa hvort nemendur verði fyrir rafrænu einelti einungis á skólatíma, á skólatíma og utan hans eða einungis utan skólatíma. Niðurstöður gefa því mynd af því hvað þætti væri hægt að einblína á þegar kemur að því að vinna með og uppræta rafræna eineltið.
Source: Skemman
Author: Katrín Hallgrímsdóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Sociology and Political Science
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6986662189
