Work

Rethinking tourism through digital innovation? Rural tourism entrepreneurship in Iceland

Year: 2024
Type: dissertation
Abstract: Í þessari ritgerð er fjallað um stafræna nýsköpun og áskoranir fyrir endurhugsun \nferðaþjónustunnar með áherslu á lífsstílsfrumkvöðla í dreifbýli. Útgangspunktur \nrannsóknarinnar er umræða um þróun ferðaþjónustu sem ávarpar þörf fyrir að draga úr \nneikvæðum áhrifum atvinnugreinarinnar á áfangastaði. Rýnt er í hvernig \nlífsstílsfrumkvöðlar í ferðaþjónustu í dreifbýli geta mögulega haft jákvæð áhrif með notkun \nstafrænnar nýsköpunar. Sérstök áhersla er lögð á að kanna samband stafrænnar nýsköpunar \nog frumkvöðlastarfs í dreifbýli á Íslandi. Byggt er á eigindlegri aðferðafræði og var \ngögnum safnað með vettangsvinnu, hálfstöðluðum viðtölum og með spurningalistum. Rætt \nvar við 60 frumkvöðla og fulltrúa stoðkerfis ferðaþjónustunnar. Einnig var stofnað til \nlausnamóts (hakkaþon) og það nýtt sem tilvik í notendarannsókn (e. action research) til að \ndraga fram hvernig ólíkar leiðir til að hagnýta stafvæðingu í dreifbýli birtast í verki. \nRannsóknin skapar dýpri skilning á athöfnum og viðhorfum smárra aðila í ferðaþjónustu til \nþróunar ferðamála á Íslandi. Hún dregur fram hvernig þessir aðilar skilja og vinna með \nnýsköpun og stafrænar lausnir og hvaða hvatar liggja þar að baki. Rannsóknin veitir nýja \nþekkingu á möguleikum frumkvöðla til að taka þátt í endurhugsun ferðaþjónustunnar og \nsetur í lokin fram tillögur um stefnu og aðgerðir til að efla slíkt starf. Markmið \nrannsóknarinnar er að brúa fræði og framkvæmd og skapa þekkingu á sviðum sem hingað \ntil hafa verið lítt könnuð hérlendis sem og á alþjóðlegum vettvangi.
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6986943426
Cites: 233
Cited by:
Related to: 10