Work

Samband hámarksstyrks í kastöxl og hámarkssnúningsafls í bol við álagsmeiðsli í kastöxl meðal kvenkyns handboltaleikmanna: Keppnistímabilið 2023 - 2024

Year: 2024
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Inngangur: Meiðslatíðni kvenna í íþróttum er hærri en meiðslatíðni karla, bæði í neðri og efri útlimum. Álagsmeiðsli í handbolta eru algengust í öxl og er minnkaður styrkur í útsnúning í öxl talinn vera þar stór áhættuþáttur. Einnig eru vísbendingar úr hafnabolta um mikilvægi hagkvæmrar notkunar á öllum líkamanum m.a. bols til að minnka álagið á axlarliðinn sjálfan við kasthreyfingu. Rannsóknir vantar á áhættuþáttum álagsmeiðsla í kastöxl hjá handboltakonum. \nMarkmið: Markmið rannsóknarinnar var að skoða hvort að hámarkssnúningsafl í bol, inn- og útsnúningsstyrkur í kastöxl og upplifað axlarálag hafi áhrif á þróun álagsmeiðsla í kastöxl hjá handboltakonum í efstu deild kvenna á Íslandi. \nAðferðir: Rannsóknin var framskyggn rannsókn. Þátttakendur (n=31) voru útispilandi handboltaleikmenn úr efstu deild kvenna á Íslandi. Áður en keppnistímabilið hófst voru framkvæmdar ísómetrískar styrktarmælingar á inn- og útsnúningsstyrk í kastöxl og mælingar á snúningsafli í bol. Einnig var helstu bakgrunnsupplýsingum um þátttakendur safnað. Þátttakendum var fylgt eftir í 26 vikur með vikulegum spurningalista til þess að meta álagsmeiðsli í kastöxl (OSTRC-O2 (Oslo Sports Trauma Research Center Overuse Questionnaire)) og til að meta upplifað axlarálag. Notast var við Spearman´s fylgnistuðul fyrir fylgniprófanir og linear mixed model til að meta megin- og víxlhrif. \nNiðurstöður: Aðeins upplifað axlarálag hafði marktæk meginhrif á alvarleikastig OSTRC-O2 (p <0,001). Hvað varðar tengsl inn-og útsnúningsstyrks við alvarleikastig OSTRC-O2 þá var jákvæð fylgni milli inn- og útsnúningsstyrk í kastöxl og alvarleikastigs OSTRC-O2 (p = 0,036, p = 0,046) og marktæk víxlhrif á milli inn- og útsnúningsstyrks og upplifaðs axlarálags á alvarleikastig OSTRC-O2 (p = 0,003, p <0,001). Víxlhrifin sýndu að þegar upplifað axlarálag jókst voru þeir leikmenn sem voru sterkari í innsnúning/útsnúning í kastöxl að tilkynna hærra alvarleikastig en þeir sem voru veikari. Einnig var jákvæð fylgni á milli inn- og útsnúningsstyrks í kastöxl og algengi verulegra meiðsla (p = 0,042, p = 0,038). Þá voru marktæk víxlhrif á milli hámarkssnúningsafls í bol og upplifaðs axlarálags á alvarleikastig OSTRC-O2 (p = 0,001). Víxlhrifin sýndu að þegar upplifað axlarálag jókst voru þeir leikmenn sem voru með hærra snúningsafl í bol að tilkynna hærra alvarleikastig en þeir sem voru með lægra snúningsafl. \nÁlyktun: Niðurstöður sýna tengsl á milli upplifaðs axlarálags og álagsmeiðsla í kastöxl hjá handboltakonum. Aukinn styrkur í kastöxl og snúningsafl í bol virðast tengjast auknum álagsmeiðslum í kastöxl hjá handboltakonum sem upplifa aukið axlarálag. Þá benda niðurstöður til tengsla á milli aukins styrks í kastöxl og algengi verulegra meiðsla í kastöxl.
Source: Skemman
Language: Icelandic
Field: Medicine
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6986991344
Cites: 43
Cited by:
Related to: 10