Year: 2023
Type: dissertation
Abstract: Sjálfsát (e. autophagy) er ferli innan frumna þar sem skemmdir, ónauðsynlegir eða skaðlegir þættir eru brotnir niður og/eða endurunnir til að viðhalda jafnvægi og vernda gegn streitu og sjúkdómum. Sjálfsát krefst nákvæmnrar stjórnunnar sem getur farið úr skorðum tengt ýmsum sjúkdómum. Einn þeirra sjúkdóma sem hefur vakið mikla athygli vegna röskunar í sjálfsáti er ellihrörnun í augnbotnum (e. age-related macular degeneration, AMD). Þessi sjúkdómur er helsta orsök sjónskerðingar hja eldri einstaklingum og hefur litla sem enga meðferðamöguleika. Meingerð sjúkdómsins er ekki fullkomnlega skilinn, en talið er að hann stafi fyrst of fremst af bilun í litþekjufrumum (e. retinal pigmented epithelium) sem gegna mikilvægu hlutverki í lifun og eðlilegri starfsemi ljósnema-frumna (e. photoreceptors). \nHér sýnum við að microphthalmia-associated transscription factor (MITF), sem er mikilvægur þáttur í þroskun og virkni litþekjufrumna, hefur neikvæða fylgni við próteinið LC3B-II. Að okkar viti er þetta fyrsta rannsóknin sem notar efnivið úr mönnum og sýnir MITF sem mögulegan stjórnunarþátt í sjálfsáti litþekjufrumna. Við einnig sýnum að sjálfsát er aukið sem svar við svelti (e. starvation). \nVið rannsökuðum einnig áhrif oxunarálags (e. oxidaitve stress), sem er stór áhættuþáttur fyrir AMD, á staðsetningu og próteintjáningu MITF. Niðurstöður okkar sýna að MITF er aðalega staðsett í umfrymi litþekjufrumna og að oxunarálag breytir staðsetningu MITF en ástæða þess er óþekkt. Frekari rannsóknir á þessu efni gætu leitt í ljós nýja virkni MITF við oxunarálagi. Niðurstöður okkar einnig benda til þess að sjálfsát aukist sem svar við oxunarálagi. Fyrir ítarlega skilning er þörf á frekari rannsóknum en okkar niðurstöður eru gott upphaf.
Source: Skemman
Author: Kristján Hermannsson 1993-
Language: Icelandic
Subfield: Cell Biology
Domain: Life Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6987041106
