Year: 2024
Type: dissertation
Abstract: Ritgerð þessi er lokaverkefni til BA prófs í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands. Í ritgerðinni leitast höfundur við að skýra helstu áskoranir við innleiðingu samningsins á Íslandi, hingað til. Ísland undirritaði samninginn 30. mars 2007 og var hann fullgiltur 23. september 2016. Nú er unnið að lögfestingu samningsins á Íslandi. Frá undirritun samningsins hafa eðli málsins samkvæmt vaknað margar spurningar um innihald og umgjörð samningsins og hvaða áskoranir innleiðing hans hann hafi í för með sér. Leitast er við að skýra hugtakið fötlun og nokkur sjónarhorn fötlunar skýrð. Farið er yfir samninginn sjálfann og 19. grein samningsins sérstaklega skoðuð. Þá er innleiðingarferli samningsins á Íslandi reifað. Fjallað er um hvernig störf félagsráðgjafa tengjast mannréttindasjónarmiðum og að lokum eru niðurstöður kynntar. Helstu áskoranir við innleiðingu samningins á Íslandi hafa verið af fjárhagslegum toga.
Source: Skemman
Author: Nína Björg Arnbjörnsdóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6987111107
