Work

Skjánotkun barna : tækifæri, áskoranir og hlutverk foreldra

Year: 2023
Type: dissertation
Abstract: Þetta verkefni er 10 eininga lokaverkefni í uppeldis- og menntunarfræði við Háskóla Íslands. Verkefnið er hefðbundin rannsóknarritgerð sem fjallar um skjánotkun barna á aldrinum 0‒13 ára, áhrifin sem þau verða fyrir af þeim völdum og mikilvægt hlutverk foreldra í að takmarka skjátíma og virða aldurstakmörk þess efnis sem börnin nota eða skoða. Í ritgerðinni verður stuðst við fræðilegar heimildir, fjallað um kenningar þekktra fræðimanna á þessu sviði og þær tengdar efninu. Á síðustu árum hefur tæknin þróast gríðarlega hratt og börn eru fljót að tileinka sér nýja hæfni. Þau byrja sífellt fyrr að nota snjalltæki, eyða miklum tíma í þeim og því meiri tíma sem þau eyða fyrir framan skjáinn þeim mun líklegri eru þau til að verða fyrir margvíslegum áhrifum, jákvæðum og neikvæðum. Það skiptir þó meira máli hvað þau gera í tækjunum og hvort og hvernig foreldrar leiðbeina þeim og stýra notkuninni. Foreldrar eiga oft í erfiðleikum með að halda utan um skjánotkun barna sinna og eru sjaldan vel upplýstir um hvaða afleiðingar hún getur haft. Því er leitast eftir í þessari ritgerð að svara eftirfarandi rannsóknarspurningunum: Hver eru áhrif skjánotkunar á börn? Hvert er hlutverk foreldra í að takmarka tíma og virða aldurstakmörk? Hvert er mikilvægi þess?
Source: Skemman
Authors: Heiðrún Anna Sigurðardóttir, Steindóra Huld Gunnlaugsdóttir
Language: Icelandic
Subfield: Education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6987176604
Cites: 55
Cited by:
Related to: 10