Year: 2017
Type: dissertation
Study design: Systematic Review
Abstract: Bakgrunnur: Stúlkur sem byrja snemma á tíðablæðingum virðast frekar sýna tilfinninga- og hegðunarvandamál á unglingsárum, líkt og þunglyndis- og kvíðaeinkenni, samanborið við jafnöldrur sem byrja á eðlilegum tíma eða seint. Meðalaldur við fyrstu tíðablæðingar er talinn vera 12 til 13 ára en aldurinn er breytilegur og verður fyrir áhrifum bæði erfða- og umhverfisþátta. Ýmsar tilgátur hafa verið settar fram til að reyna að skýra sambandið á milli snemmbúinna tíðablæðinga og þunglyndiseinkenna á unglingsárum og er ljóst að margir þættir liggja að baki. \nTilgangur: Að skoða samband snemmbúinna tíðablæðinga og þunglyndiseinkenna á unglingsárum. \nAðferð: Í þessum rannsóknasamanburði var leitað að rannsóknarheimildum í þremur rafrænum gagnagrunnum; PubMed, Web of Science og Cinahl sem skilaði 12 nothæfum rannsóknum. Að auki fundust tvær nothæfar rannsóknir í heimildalistum þeirra. Heimildaleit fór fram á tímabilinu frá nóvember 2016 til febrúar 2017. \nNiðurstöður: Af þeim 14 rannsóknum sem fundust sýndu níu fram á marktækt samband á milli aldurs við fyrstu tíðablæðingar og þunglyndiseinkenna hjá stúlkum á aldrinum 11 til 15 ára. Fjórar rannsóknir sýndu fram á að sambandið var ekki marktækt hjá stúlkum á aldrinum 16,5 ára til 25 ára. Aðrar tvær sýndu fram á marktækt samband hjá stúlkum á aldrinum 14 til 17 ára og 12 til 20 ára. Þá voru tvær rannsóknir sem sýndu fram á að snemmbúnar tíðablæðingar juku líkur á þunglyndis- og kvíðaröskunum á fullorðinsárum. \nÁlyktun: Þessi rannsóknasamanburður varpar ljósi á þau áhrif sem snemmbúnar tíðablæðingar geta haft á líðan stúlkna á unglingsárum. Það að byrja snemma á tíðablæðingum getur leitt til þess að stúlkur upplifi frekar þunglyndiseinkenni á aldrinum 11 til 15 ára en einkennin virðast einungis vara tímabundið og halda ekki áfram fram á snemmfullorðinsár. Varast ber þó að alhæfa um niðurstöður þar sem rannsóknirnar höfðu ýmsar takmarkanir. Þörf er á viðameiri rannsóknum hér á landi er snúa að stúlkum á kynþroskaaldri þar sem skoðað er samband aldurs við fyrstu tíðablæðingar og þunglyndiseinkenna. \nLykilorð: Fyrstu tíðablæðingar, snemmbúnar fyrstu tíðablæðingar og þunglyndiseinkenni.
Source: Skemman
Authors: Helena Rut Jónsdóttir 1992, Lea Hrund Guðjónsdóttir 1992
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Clinical Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6987259611
