Work

Skuldbinding nemenda til náms og skóla: Tengsl við trú á eigin getu, ánægju með námsbrautarval og þátttöku foreldra

Year: 2013
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Markmið rannsóknarinnar er að kanna hvort trú framhaldsskólanemenda á eigin getu í námi, ánægja þeirra með námsbrautarval sitt og þátttaka foreldra í námi þeirra spái fyrir um skuldbindingu þeirra til náms og skóla. Gagnaöflun rannsóknarinnar fór fram árið 2007 og náði til 3064 15 til 19 ára nemenda í öllum framhaldsskólum landsins. Niðurstöður fjölbreytuaðhvarfsgreiningar benda til þess að trú á eigin getu, ánægja með námsbrautarval og þátttaka foreldra spái fyrir um skuldbindingu nemenda eins og hún birtist í hegðun þeirra, tilfinningum og hugsunum um nám og skóla. Niðurstöðurnar koma fram hvort sem um stúlkur eða pilta er að ræða og að teknu tilliti til aldurs nemenda, fyrri námsárangurs þeirra og menntunar foreldra. Stúlkur eru að jafnaði skuldbundnari námi og skóla en piltar. Auk þess hafa yngri nemendur meiri hegðunar- og tilfinningalega skuldbindingu en eldri nemendur meiri vitsmunalega skuldbindingu. Niðurstöðurnar geta nýst náms- og starfsráðgjöfum og foreldrum sem og öðrum sem koma að uppeldi og námi barna á öllum skólastigum enda getur skuldbinding nemenda haft veigamikil áhrif á velgengni þeirra í námi, velferð og framtíðarmöguleika.
Source: Skemman
Author: Malla Rós Valgerðardóttir 1986
Language: Icelandic
Field: Psychology
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6987306423
Cites: 31
Cited by: 2
Related to: 10