Work

Snillingarnir: Árangur og breytingar á stýrifærni á meðferðarnámskeiði fyrir börn með ADHD

Year: 2015
Type: dissertation
Abstract: Rannsókn var gerð á hópmeðferð fyrir börn með athyglisbrest og ofvirkni. Metið var hvort meðferðin hefði áhrif á getu, líðan og hegðun barnanna. Þátttakendur voru 24 börn á aldrinum 8,9 til 11,8 ára, meðalaldur 9,2 ár. Fjórtán þátttakendur voru drengir og tíu stúlkur. Námskeiðið var tvisvar sinnum í viku, í tíu vikur. Á námskeiðinu hlutu börnin þjálfun í félagsfærni, tilfinningastjórn, úrlausnum vandamála, hömlun á hvatvísi, auk vinnsluminnisþjálfunar. Niðurstöður spurningalista og tölvuverkefna gáfu vísbendingar um að félagsfærni, tilfinningastjórn, úrlausn vandamála, hömlun á hvatvísi og vinnsluminni hafi batnað hjá þátttakendum eftir námskeiðið. Marktækur munur var á athyglisbresti og framtakssemi fyrir og eftir námskeiðið, og á frammistöðu á tölvuverkefni sem ætlað er að mæla hvatvísi.
Source: Skemman
Language: Icelandic
Field: Medicine
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6987357345
Cites: 41
Cited by:
Related to: 10