Stjórnvöld & loftslagsmál: Helstu hvatar fyrirtækja til að leggja meiri áherslu á umhverfisvernd
Year: 2019
Type: dissertation
Abstract: Umfjöllunarefni þessarar ritgerðar er hvatar og hlutverk þeirra sem tæki stjórnvalda til að hvetja fyrirtæki til að sinna aukinni þátttöku í umhverfismálum. Íslensk stjórnvöld hafa nýlega gefið út aðgerðaáætlun í loftslagsmálum. Þar koma fram markmið ríkisstjórnarinnar um að standa við skuldbindingar sínar gagnvart Sameinuðu þjóðunum um að sporna gegn áhrifum af völdum loftslagsbreytinga sem heimurinn stendur frammi fyrir í dag. Á heimsvísu tengjast loftslagsbreytingar fyrst og fremst orkumálum, nær öll samanlögð losun gróðurhúsalofttegunda kemur frá orkuframleiðslu. Þegar kemur að loftslagsmálum er hlutverk fyrirtækja ólíkt þar sem um mismikla losun er að ræða. Stjórnvöld þurfa því að ganga úr skugga um að mengandi iðnaður og fyrirtæki á því sviði sinni umhverfisstjórnun og eftirliti og tryggja þannig öryggi almennings þegar kemur að loftslagsmálum. Ísland hefur sérstöðu í umhverfismálum þegar kemur að sjálfbærni við orkuframleiðslu. Ríkisstjórn Íslands hefur sett sér það afar metnaðarfulla markmið að Ísland verði í fararbroddi í umhverfismálum á heimsvísu og öðrum þjóðum til fyrirmyndar á sviði umhverfisverndar. Fyrirtæki standa því frammi fyrir auknum þrýstingi frá stjórnvöldum um ábyrga þátttöku í umhverfismálum. Hvatar sem stjórnvöld geta beitt til að stýra fyrirtækjum í átt að aukinni umhverfisvernd eru margskonar. Hvatar geta bæði verið hvetjandi eða letjandi en eru fyrst og fremst tæki fyrir stjórnvöld til þess að fá fyrirtæki til að taka virkan þátt í baráttunni gegn loftslagsbreytingum. \nRitgerðin byggir á heimildaöflun, annars vegar um stefnu stjórnvalda í loftslagsmálum og hins vegar um kenningar Hoffmans um hvaða hvatar auka þátttöku fyrirtækja í umhverfismálum. Markmiðið er að komast að því hvort stjórnvöld hér á landi nýti sér þau tæki sem í boði eru til að hvetja fyrirtæki til að sýna aukna ábyrgð í umhverfismálum.
Source: Skemman
Author: Christa Hlín Lehmann
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Economics and Econometrics
Domain: Social Sciences
SDGs: Climate action, Life on land
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6987446025
