Year: 2020
Type: dissertation
Abstract: Tíðni meðgöngusykursýki (MGS) fer hækkandi í heiminum og þar er Ísland engin undantekning. Tíðnin helst í hendur við hækkandi aldur mæðra, vaxandi offitu í heiminum og aukna tíðni sykursýki týpu tvö (SS2). MGS er einn af áhættuþáttum í því að þróa með sér SS2. MGS hefur langtímaáhrif á móður og börn hennar og hætta á að vítahringur lífsstílssjúkdóma skapist fyrir komandi kynslóðir. Mikilvægt er því að ljósmæður veiti þessum konum góða fræðslu og eftirfylgni til að rjúfa þennan vítahring en margt er hægt að gera til að sporna við því. \n\tTilgangur þessarar fræðilegu samantektar var að svara eftirfarandi rannsóknarspurningum: hver er ávinningur eftirfylgnar eftir fæðingu hjá konum sem greinast hafa með MGS? Hvernig er best að haga eftirfylgninni til að hún beri sem bestan árangur? Hvaða þjónusta og eftirfylgni er í boði á Íslandi fyrir þann hóp kvenna sem greinast með MGS? Fræðilegra heimilda var leitað í gagnasöfnunum PubMed og SCOPUS. Í heildina voru notaðar 25 ritrýndar fræðigreinar, klínískar leiðbeiningar og heimildir frá opinberum stofnunum. Til að fá upplýsingar um þá þjónustu sem í boði er á Íslandi fyrir þennan hóp var svo tölvupóstur sendur á helstu stofnanir á Íslandi sem sinna þessum hópi kvenna og spurt hvernig eftirfylgni er háttað hjá þeim. 12 af 23 stofnunum svöruðu. \n\tNiðurstöður fræðilegu samantektarinnar leiddu í ljós að þeir þættir sem helst hafa jákvæð áhrif á eftirfylgni eru ef hún hefst innan við sex mánuði frá fæðingu barns og stendur í að minnsta kosti eitt ár og að fram fari einstaklingsmiðuð fræðsla um mataræði og hreyfingu af heilbrigðisstarfsmanni. Taka þarf mið af núverandi mataræði konunnar og benda á það sem betur má fara og einnig þarf að fara fram mikil hvatning til að kona viðhaldi hreyfingu og lífsstílsbreytingin verði til langs tíma. Könnun sem gerð var á eftirfylgni á Íslandi sýndi að mjög breytileg þjónusta er í boði eftir heilsugæslum og oft á tíðum einnig breytileg þjónusta eftir því hvaða einstaklingur veitir hana en þess skal getið að svarhlutfall var einungis var 52%. \n\tEkki hefur stöðluð eftirfylgni farið fram á Íslandi fyrir konur með sögu um MGS. Ákjósanlegast væri ef ljósmæður hefðu kost á að sinna eftirfylgni eftir fæðingu fyrir þennan hóp og veita þeim fræðslu, aðhald og hvatningu til lífsstílsbreytinga. Þannig gætu ljósmæður lagt sitt af mörkum og minnkað líkur á MGS á seinni meðgöngum ásamt því að draga úr líkum á að konur þrói með sér SS2 og hjarta- og æðasjúkdóma seinna meir ásamt því að minnka líkur á lífsstílssjúkdómum hjá afkomendum þessara kvenna. \nLykilhugtök: ljósmóðir, meðgöngusykursýki, tími eftir fæðingu, eftirfylgni, hreyfing.
Source: Skemman
Author: Heiðrún Sigurðardóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Endocrinology, Diabetes and Metabolism
Field: Medicine
Domain: Health Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6987457405
