Sykursýki er áskorun : hver er staða hóps einstaklinga með sykursýki í eftirliti í sykursýkismóttöku á Heilbriðgisstofnun Suðurnesja í 10 ár
Year: 2016
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Bakgrunnur: Einstaklingum sem greinast með sykursýki fer ört fjölgandi hér á landi sem og annarsstaðar. Mikilvægt er að bregðast við því með góðu og skipulögðu eftirliti þar sem um er að ræða langvinnan sjúkdóm sem getur haft í för með sér alvarlega og kostnaðarsama fylgikvilla. Þörf er á að veita eftirlit í heimabyggð til hagræðingar fyrir einstaklinginn og heilbrigðiskerfið. \nTilgangur: Að skoða stöðu hóps einstaklinga með sykursýki í eftirliti á heilsugæslustöð og þá þjónustu sem þeir fá miðað við alþjóðastaðla með það að markmiði að gefa mynd af hópi einstaklinga með sykursýki og bæta þjónustu. \nAðferð: Aftursýn ferilrannsókn þar sem upplýsingar voru fengnar úr rafrænni sjúkraskrá og gagnagrunni sykursýkismóttöku Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja árin 2005, 2010 og 2015. Úrtakið voru allir sem skráðir voru í móttökuna í upphafi árs 2005(n=233), og tveir hópar einstaklinga sem greindust árin 2010 (n= 50) og 2015 (n= 53). \nNiðurstöður: Meðalaldur upphafshóps var 68 ár 2015 og við greiningu 55 ár. Meðal HbA1c gildi hópsins voru í upphafsmælingu við komu í móttökuna, 8.16%, árið 2005, 7.22%, þar er marktækur munur til lækkunar, hækkun sem er marktæk varð síðan 2010 í 7.43% og ómarktæk 2015 í 7.56%. Diastoliskur blóðþrýstingur lækkaði marktækt til 2015. Flestir náðu alþjóðamarkmiðum í HbA1c árið 2005 (51%), HDL árið 2010 (43.8%), LDL árið 2015(41.9%), TG árið 2010 (79.8%), BMI árið 2015(44.2%), systoliskum blþr. árið 2010(63.4%) og diastoliskum blþr. árið 2015(74.2%). Marktæk tengsl voru milli einkenna frá taugakerfi og hærra HbA1c. BMI var í kringum 32 kg/m² öll árin. Mæting í árlega blóðprufu og EKG var góð. Flestir nota töflur eða insulin eingöngu til blóðsykurlækkunar. 22.7% af þeim sem látnir voru létust vegna fylgikvilla. Hjá nýgreindum hópum var HbA1c 8.13%, 2010, 7.79%, 2015 og BMI var yfir 35 kg/m² bæði árin. \nÁlyktanir: Þó svo rannsóknarhópurinn eldist bæði í lífárum og árum með sjúkdómnum og í honum var blanda af einstaklingum með sykursýki tegund 1 og tegund 2 þá er augljóst að gera þarf betur í að lækka meðal HbA1c gildið til að minnka líkur á fylgikvillum. Of hár líkamsþyngdarstuðull er einnig gegnumgangandi. Skráningu upplýsinga var ábótavant á mörgum sviðum, mjög mikilvægt er að bæta hana.
Source: Skemman
Author: Hafdís Lilja Guðlaugsdóttir 1960
Institution: University of Akureyri
Language: Icelandic
Subfield: Endocrinology, Diabetes and Metabolism
Field: Medicine
Domain: Health Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6987540876
