Tengsl á milli ADHD og fíknsjúkdóma
Year: 2015
Type: dissertation
Abstract: Athyglisbrestur með ofvirkni (ADHD) er taugaþroskaröskun sem gerir yfirleitt vart við sig fyrir 7 ára aldur, en greinist þó einnig á unglings- og fullorðinsárum. Röskunin getur haft áhrif á vitsmuna- tilfinninga- og sálfélagslegan þroska einstaklings og dregið úr námsgetu hans og félagslegri aðlögunarhæfni. \nEinstaklingar með ADHD virðast í aukinni áhættu á að greinast með fleiri geð- raskanir/sjúkdóma, þ.m.t fíknsjúkdóma. Þeir eiga það til að byrja fyrr að neyta áfengis- og vímuefna, nota meira magn af efnunum og þurfa oftar að leita sér heilbrigðisþjónustu, sökum þess. Rannsakendur hafa því í auknum mæli reynt að varpa ljósi á orsakir fyrir þessu og niðurstöður rannsókna gefa til kynna að hvatvísi, áhættuhegðun, álag og aðrar fylgiraskanir geta aukið líkur á því að einstaklingur leiðist út í áfengis- og/eða vímuefnaneyslu. Auk þess virðast áhrif sumra vímuefna geta dregið úr óæskilegum og hamlandi einkennum ADHD. \nTil þess að draga úr áhættu á því að einstaklingar með ADHD þrói með sér fíknsjúkdóma þarf að greina þessa einstaklinga snemma og veita þeim viðeigandi meðferð. Þrátt fyrir að eitt helsta meðferðarúrræði ADHD sé örvandi lyfjameðferð hefur það sýnt sig að slík meðferð dragi frekar úr líkum á misnotkun vímuefna heldur en að auka líkur á misnotkun þeirra og þróun fíknsjúkdóma. \nEinstaklingar sem eru með ADHD og hafa þróað með sér fíknsjúkdóma virðast eiga erfiðara með meðferðarheldni, samanborið við þá sem einungis eru með fíknsjúkdóma, og því er mikilvægt að veita þessum einstaklingum samþætta meðferð, þ.e meðferð við bæði fíknsjúkdómnum og ADHD, samtímis.
Source: Skemman
Authors: Fanney Dagmar Helgadóttir 1990, Sigríður Sæland Óladóttir 1984
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Psychiatry and Mental health
Field: Medicine
Domain: Health Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6987568631
