Work

Tengsl svefns við andlega líðan ungmenna: Byggt á rannsókninni Ungt fólk-2016 frá Rannsókn og Greiningu- og opinberum tölum Embætti Landlæknis og Mennta og menningarmálaráðuneytinu

Year: 2019
Type: dissertation
Abstract: Markmið þessa verkefnis var að skoða tengsl svefns og mats ungmenna á líðan sinni. Skoðuð voru birt gögn varðandi mat ungmenna á andlegri líðan, svefn, sjálfsskaðandi hegðun og félagsleg samskipti í skýrslunni „Ungt fólk-2016“ frá Rannsóknum og Greiningu, sem náði yfir 12 ára tímabil (2004 - 2016). Jafnframt voru opinberar tölur skoðaðar samhliða. Þar ber að nefna skráð samskipti fagfólks á heilsugæslustöðvum á landinu frá Embætti Landlæknis milli áranna 2011 og 2015 varðandi lyndis og kvíðaraskanir hjá einstaklingum 20 ára og yngri. Einnig var rýnt í skýrslur frá Mennta- og menningarmálaráðuneytinu varðandi brottfall úr framhaldsskólum milli áranna 2014 og 2017. Samkvæmt skýrslunni Ungt fólk ná aðeins um 30% ungmenna viðmiðum um 8 klst. svefn. Mat ungmenna á andlegri líðan virðist einnig hafa farið hrakandi á undanförnum árum. Tilvikum um sjálfsskaðandi hegðun stelpna virðist hafa fjölgað milli áranna 2010 og 2016. Partýum, bíóferðum og kaffihúsaferðum \nungmenna virðist hafa fækkað frá árinu 2004, hugsanlega er um að ræða breytingu á félagsmynstri ungmenna. Skráðum samskiptum fagfólks um lyndis- og kvíðaraskanir, meðal 20 ára og yngri, virðist hafa fjölgað milli áranna 2011 og 2015. Brottfall úr framhaldsskóla sem tengist andlegri líðan virðist sömuleiðis hafa farið hækkandi milli áranna 2014 og 2017. Skoða þarf brottfall úr framhaldsskóla betur, þar sem um flókið kerfi samverkandi þer að ræða. Líklegast er um að ræða aukið aðgengi að fjölmiðlum og aukin vitundarvaking ungmenna um geðheilbrigði sem spilar hlutverk.
Source: Skemman
Author: Birkir Einar Gunnlaugsson
Language: Icelandic
Field: Psychology
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6987585211
Cites: 48
Cited by:
Related to: 10