Work

Tengsl samsærisþankagangs við kvíða, þunglyndi og einmanaleika: Þýðisrannsókn meðal Íslendinga

Year: 2024
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Þekkt er að samsærisþankagangur hefur tengsl við ýmsa þætti, aðstæðubundna, persónubundna og einnig geðraskanir. Á tímum COVID-19 faraldursins jókst kvíði, þunglyndi og einmanaleiki meðal almennings, en atburðir sem valda óvissu og ótta eru frjór jarðvegur fyrir samsæriskenningar. Markmið þessarar rannsóknar er að kanna tengsl samsærisþankagangs við kvíða, þunglyndi og einmanaleika auk tengsla við bakgrunnsbreytur líkt og kyn. Rannsóknin er nýmæli og ekki er vitað til þess að svipuð rannsókn hafi verið framkvæmd í íslensku þýði. Rannsóknin var þýðisrannsókn á vegum Lýðheilsumiðstöðvar Háskóla Íslands, Embættis landlæknis og Sóttvarnarlæknis og fór gagnasöfnun fram á tímabilinu 2020-2022. Niðurstöður leiddu í ljós jákvæð en ólínuleg tengsl milli samsærisþankagangs og kvíða, þunglyndis og einmanaleika. Greinilegt er að einmanaleiki skipti töluverðu máli í sambandi þunglyndis og kvíða við samsærisþankagang, en einmanaleiki magnar upp samsærisþankagang á meðal fólks með kvíða og þunglyndi. Skýr kynjamunur fannst þar sem karlar mældust með hærri samsærisþankagang í öllum tilvikum. Karlar með alvarlegt þunglyndi mældust með langmestan samsærisþankagang. Niðurstöður gefa góða mynd af sambandi samsærisþankagangs við kvíða, þunglyndi og einmanaleika. Þó hefur mörgum spurningum ekki verið svarað og því telja höfundar brýna nauðsyn á áframhaldandi rannsóknum.
Source: Skemman
Authors: Tinna Rún Rúnarsdóttir 1998-, Fjóla Ósk Guðmannsdóttir 2000-
Language: Icelandic
Field: Psychology
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6987611856
Cites: 68
Cited by:
Related to: 10