Work

Tengsl ADHD við daglegar rútínur barna

Year: 2014
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Áhugi á rútínum hefur farið vaxandi á síðustu árum þar sem þær eru taldar stuðla að bættri líðan og heilsu. Tilgangur rannsóknarinnar var að skoða tengsl ADHD við daglegar rútínur barna með því að bera saman rútínur barna með ADHD við rútínur barna í stöðlunarúrtaki. Að auki voru tengsl rútína við alvarleika ADHD einkenna, aldur og menntun foreldra, óreiðu á heimili og fylgikvilla skoðuð. Alls tóku 135 foreldrar barna með ADHD þátt, þar af voru 103 drengir og 31 stúlka. Fjórir spurningalistar voru lagðir fyrir þátttakendur til að meta ADHD einkenni (Ofvirknikvarðinn), rútínur (CRQ-IS), óreiðu á heimili (CHAOS) og til að skima fyrir hugsanlegum fylgikvillum (SDQ). Settar voru fram fimm tilgátur. Í fyrsta lagi að börn sem eiga foreldra/forráðamenn sem eru eldri eða sem lokið hafa meiri menntun búi við fleiri rútínur. Í öðru lagi að börn með alvarlegri ADHD einkenni búi við færri rútínur. Í þriðja lagi að munur væri á rútínum barna með ADHD og barna í stöðlunarúrtaki, bæði á CRQ-IS listanum í heild og einstökum undirþáttum hans. Í fjórða lagi að börn með flóknari vanda búi við færri rútínur. Í fimmta lagi að börn sem búa á heimili þar sem meiri óreiða er til staðar búi við færri rútínur. Niðurstöður rannsóknar leiddu í ljós að tilgáta eitt var ekki studd af rannsókn þar sem börn eldri foreldra og foreldra með meiri menntun bjuggu ekki við fleiri rútínur. Tilgáta tvö var studd að hluta til þar sem börn með miðlungs alvarleg ADHD einkenni bjuggu við færri rútínur en börn með minni alvarleg einkenni. Tilgáta þrjú var studd að hluta til þar sem börn með ADHD búa við færri rútínur sem snúa að daglegum athöfnum, ábyrgð á tiltekt, heimanámi og samskipti við aðra fjölskyldumeðlimi en börn í stöðlunarúrtaki. Tilgáta fjögur var studd að hluta til þar sem börn með tvo fylgikvilla bjuggu við færri rútínur en börn með einn fylgikvilla. Tilgáta fimm var studd sem bendir til þess að börn sem búa á heimili þar sem meiri óreiða er til staðar búi við færri rútínur.
Source: Skemman
Author: Aldís Þorbjörg Ólafsdóttir 1987
Language: Icelandic
Field: Medicine
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6987631466
Cites: 62
Cited by:
Related to: 10