Tengsl tölvunotkunar og félagslegra samskipta meðal unglinga
Year: 2014
Type: dissertation
Abstract: Útdráttur \nMarkmið þessarar rannsóknar var að skoða tengsl á milli tölvunotkunar og félagslegra samskipta meðal unglinga. Gagnasafnið sem notast var við er úr rannsókninni Heilsa og lífskjör skólanema en það er íslenskur hluti alþjóðlegrar rannsóknar sem heitir Health Behaviors in School-aged Children (HBSC). Rannsóknin er framkvæmd á fjögurra ára fresti en í þessari rannsókn er notast við svör nemenda í 10. bekk skólaárið 2009/2010. Þátttakendur rannsóknarinnar voru alls 3.857. Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu fram á hverfandi neikvæða fylgni á milli tölvuleikjanotkunar og félagslegra samskipta (r = -0,07, p <0,05). Fylgni á milli tölvunotkunar og félagslegra samskipta reyndist einnig mjög veik (r = 0,1, p <0,05). Strákar verja meiri tíma í tölvuleikjum heldur en stelpur (t(2699) = 34,5, p <0,05). Að meðaltali verja strákar 15,5 klukkustundum á viku í tölvuleikjum á meðan stelpur spila tölvuleiki að meðaltali 2,5 klukkustundir á viku. Unglingar sem búa hjá einstæðum foreldrum verja meiri tíma í tölvuleikjum eða u.þ.b. tveimur klukkustundum á viku (F(1, 3726) = 27,3, p <0,05). \n \nLykilorð: tölvunotkun, tölvuleikir, unglingar, félagsleg samskipti.
Source: Skemman
Author: Valerija Bibic 1989
Language: Icelandic
Subfield: Sociology and Political Science
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Keywords: computer game use, social interaction, adolescents, screen time, gaming time, single-parent families, family structure, social skills, health behavior, school-aged children, HBSC study, Icelandic adolescents, peer relationships, self-esteem, self-confidence, self-regulation, self-control, self-competence
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6987638010
