Work

Tvígreiningar og meðferðarúrræði

Year: 2016
Type: dissertation
Abstract: Hugtakið tvígreining hefur enga formlega skilgreiningu en vísar yfirleitt til tvígreiningar á vímuefnasýki og geðröskun. Vímuefnasýki er algeng meðal einstaklinga sem glíma við geðhvarfasýki og hafa rannsóknir sýnt að í 50-60% tilfella eru einstaklingar með geðhvarfasýki einnig með vímuefnasýki. Markmið verkefnisins er að gera sjúkdómunum góð skil og rýna betur í tenglin þeirra á milli ásamt helstu kenningum sem skýra háa tíðni þeirra. Þar að auki er fjallað um þau meðferðarúrræði og þær aðferðir sem hafa borið mestan árangur fyrir þennan hóp, ásamt því að skoða hvort Ísland sé að nota þær meðferðarnálganir í sinni þjónustu. Niðurstöður gáfu til kynna að samþætt meðferð, meðferð innan sömu stofnunar sem meðhöndlar báða sjúkdóma á sama tíma hentar best og býður Ísland upp á þann möguleika hér. Best er jafnframt að styðjast við blöndu af lyfja-, einstaklings-, hóp- og fjölskyldumeðferðir.
Source: Skemman
Author: Íris Ósk Hlöðversdóttir 1987
Language: Icelandic
Subfield: Epidemiology
Field: Medicine
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6987789168
Cites: 102
Cited by:
Related to: 10