Viðhorf nemenda á unglingastigi til yndislesturs
Year: 2018
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Markmiðið með rannsókninni er að varpa ljósi á viðhorf nemenda á unglingastigi til yndislesturs ásamt því að leitast eftir hugmyndum þeirra um hvort þörf sé á að breyta fyrirkomulaginu á honum til að stuðla enn frekar að aukinni hvatningu í lestri. Þannig er hægt að sjá hvort nemendur líta á yndislestur sem kvöð eða jákvæðan þátt í skólastarfinu og hvort nemendur búa yfir hugmyndum sem geta gagnast kennurum í lestrarkennslu eða lestrarátaki. Það er mikilvægt að skoða þennan þátt í skólastarfi því nemendur eiga að vera ánægðir í námi sínu og fá tækifæri til að njóta sín. \nÁberandi er sú stefna í íslensku menntakerfi að leggja meiri áherslu á lestur því fyrri rannsóknir hafa sýnt fram á það að lestur ungmenna fari minnkandi og jafnframt hafa niðurstöður PISA kannana sýnt að lesskilningur hjá íslenskum nemendum hafi farið aftur um tæpt skólaár á fimmtán árum. Rannsóknin var framkvæmd á vorönn 2018 og sömuleiðis úrvinnsla gagna. Hún var byggð á megindlegum rannsóknaraðferðum og fengu 389 nemendur úr tveimur þátttökuskólum á höfuðborgarsvæðinu í hendurnar spurningalista með fjölvals- og opnum spurningum. Rannsóknarspurningin var: Hvert er viðhorf nemenda á unglingastigi til yndislesturs? Helstu niðurstöður voru þær að meirihluti nemenda eða 88% (N= 324) telja lestur vera mikilvægan. Nemendur voru yfirleitt jákvæðir gagnvart yndislestri en telja að nokkurra úrbóta sé þörf.
Source: Skemman
Author: Andrea Rós Óskarsdóttir 1991
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Education
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
SDG: Quality education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6987981623
