Year: 2015
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Haustið 2011 hóf Landspítali innleiðingu á aðferðafræði straumlínustjórnunar (e. lean). Alþjóðalega ráðgjafafyrirtækið McKinsey & Company var fengið til að veita ráðgjöf og stuðning við innleiðinguna. Í upphafi var ákveðið að leggja mikla áherslu á fræðslu og þjálfun starfsmanna. Gerður var vegvísir þar sem farið var yfir stöðuna á spítalanum og mótuð var framtíðarsýn þar sem markmið með frekari umbótum við notkun straumlínustjórnunar voru kynnt. \nNotkun og vinsældir straumlínustjórnunar hafa aukist talsvert á undanförnum árum. Uppruna straumlínustjórnunar má þó rekja aftur til ársins 1894 í Japan og ársins 1913 í Bandaríkjunum. Skilgreining á hugtakinu straumlínustjórnun gengur út á að aukið sé virði fyrir viðskiptavininn með lágmarkskostnaði. \nMarkmið lokaverkefnisins var að rannsaka viðhorf stjórnenda Landspítala til straumlínustjórnunar. Í upphafi voru lagðar fram eftirfarandi þrjár rannsóknarspurningar: \n -Þekkja stjórnendur Landspítala aðferðafræði straumlínustjórnunar (e. lean)? \n -Upplifa stjórnendur Landspítala að þeir hafi fengið fullnægjandi fræðslu og þjálfun í aðferðafræði straumlínustjórnunar (e. lean)? \n -Er innleiðing aðferðafræði straumlínustjórnunar (e. lean) að skila árangri að mati stjórnenda? \nRannsóknin byggir á megindlegum aðferðum þar sem unninn var spurningalisti sem innihélt 18 spurningar og var hann lagður fyrir alla 169 stjórnendur spítalans. Svarhlutfallið var 49,1% og niðurstöðurnar benda til þess að stjórnendur þekki inn á aðferðafræði straumlínustjórnunar. Vel er staðið að fræðslu um aðferðafræði straumlínustjórnunar en bæta þarf verklega þjálfun. Heilt yfir telja stjórnendur að innleiðing á aðferðafræði straumlínustjórnunar skili árangri.
Source: Skemman
Author: Eydís Ýr Rosenkjær
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Field: Medicine
Domain: Health Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6987989433
