Work

Vaxtarhugarfar í tungumálakennslu

Year: 2023
Type: dissertation
Abstract: Vaxtarhugarfar hefur á undanförnum árum fengið mikla athygli í tengslum við nám og kennslu. Sálfræðiprófessorinn Carol Dweck kom fram með kenninguna um að tvær tegundir hugarfars væru til, annars vegar festuhugarfar og hins vegar vaxtarhugarfar. Mikill ávinningur er talinn vera af innleiðingu vaxtarhugarfars bæði fyrir nemendur, starfsfólk skóla og skólasamfélagið í heild sinni. Þannig hafa rannsóknir sýnt að nemendur með vaxtarhugarfar sýni seiglu og viðleitni í kjölfar mistaka, séu óhræddir við að reyna aftur og upplifi almennt jákvæðari tilfinningar gagnvart námi. Það að innleiða vaxtarhugarfar í skóla getur reynst flókið verk og margt sem þarf að huga að. Þannig hafa rannsóknir sýnt að mestu máli skiptir að kennarar og starfsmenn skóla séu vel undirbúnir og skilji mikilvægi vaxtarhugarfars. Fjöldi rannsókna hefur skoðað vaxtarhugarfar í tengslum við stærðfræðinám og hafa niðurstöður sýnt fram á jákvæðar afleiðingar þess fyrir nemendur og kennara. Á sama tíma hefur vaxtarhugarfar ekki mikið verið rannsakað út frá tungumálakennslu, þrátt fyrir að finna megi rannsóknir sem sýni fram á jákvæð tengsl. \nÍ þessari ritgerð var markmiðið að skoða vaxtarhugarfar, þá sérstaklega í tengslum við tungumálakennslu. Í gegnum ritgerðina er rýnt í ýmsar hliðar vaxtarhugarfars, þannig er fjallað um þá sem styðja kenninguna og þá sem telja hana fá of mikla athygli. Þá er innleiðing vaxtarhugarfars í skólastarf og undirbúningur kennara skoðaður. Niðurstöður benda til þess að tvö atriði megi rannsaka í framhaldinu. Þannig skortir rannsóknir á vaxtarhugarfari á Íslandi með íslenskum markhóp. Þá mætti einnig rannsaka tengsl tungumálakennslu og vaxtarhugarfars betur, bæði hér á landi og erlendis, þá sérstaklega til að komast að því hvaða kennsluaðferðir, námsgögn og námsmat nýtast í tungumálakennslu sem byggir á vaxtarhugarfari.
Source: Skemman
Authors: María Árelía Guðmundsdóttir, Bryndís Sunna Guðmundsdóttir
Language: Icelandic
Field: Psychology
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6988006141
Cites: 24
Cited by:
Related to: 10