Year: 2011
Type: dissertation
Abstract: Störf hjúkrunarfræðinga á hjúkrunarheimilum hafa breyst á síðustu áratugum m.a. vegna skorts á hjúkrunarfræðingum, veikari heimilismanna og hagræðingar í heilbrigðiskerfinu. Samfara þessum breytingum gerðu heilbrigðisyfirvöld meiri kröfur um fagmennsku, gæði og hagræðingu. Þessar breyttu aðstæður hafa haft áhrif á störf hjúkrunarfræðinga á hjúkrunarheimilum og þau felast nú meira en áður í stjórnun og úthlutun verkefna til sjúkraliða og aðstoðarfólks í hjúkrun. \nTilgangur rannsóknar var að leita svara við spurningunni: Hver eru viðfangsefni hjúkrunarfræðinga á hjúkrunarheimilum? Notuð var eigindleg aðferð þar sem gögnum var safnað með rýnihópaviðtölum. Samtals tóku 22 hjúkrunarfræðingar þátt í fjórum rýnihópum. Viðtölin voru hljóðrituð, rituð upp orðrétt, innihalds- og þemagreind. Greind voru þrjú þemu úr svörum þátttakenda, eitt yfirþema og tvö meginþemu. \nYfirþemað var; Að nýta sérhæfða faglega þekkingu hjúkrunarfræðinnar. Meginþemun voru; I. Árvekni, að hafa yfirsýn, vera vakandi yfir öllu, heimilismönnum og starfsmönnum, heildræn nálgun; og II. Að vera greinandi, sjá hlutina í öðru ljósi. Sérhæfð fagþekking hjúkrunarfræðinnar felur í sér árvekni og heildarsýn, að vera greinandi sem er kjarninn í viðfangsefnum hjúkrunarfræðinga á hjúkrunarheimilum og þar með störfum þeirra. \nNiðurstöðurnar gefa til kynna mikilvægi sérhæfðrar þekkingar í hjúkrun aldraðra á hjúkrunarheimilum og hvernig beita þarf árvekni og faglegri þekkingu til að mæta þörfum heimilismanna. \nLykilorð: Gæði, hjúkrun, hjúkrunarfræðingar, hjúkrunarheimili, mönnun, starfsumhverfi, úthlutun, viðfangsefni.
Source: Skemman
Author: Jónbjörg Sigurjónsdóttir 1949
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Geriatrics and Gerontology
Field: Medicine
Domain: Health Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6988090630
