Work

Ystafell: Skipulag í óreiðunni. Heimildamynd um innra starf á Samgönguminjasafninu á Ystafelli.

Year: 2017
Type: dissertation
Abstract: Heimildamyndin Ystafell: Skipulag í óreiðunni er samtímaleg mannlífsmynd um innra starf á Samgönguminjasafninu á Ystafelli, sem staðsett er í Kaldakinn í Þingeyjarsveit. Þar er fylgst með safnstjóranum Sverri Ingólfssyni sem notar rólega veturnar í að gera upp fornbíla og á sumrin tekur hann á móti ferðamönnum og allt iðar að lífi. Athygli vekur að Sverrir er lamaður fyrir neðan bringu en það truflar hann ekki í vinnunni. Myndin sem var tekin upp árið 2016 fer yfir árstímabil í starfi á safninu og er hugsuð til kynningar, fræðslu og skemmtunar. Greinagerð þessi fer yfir hugmyndafræði myndarinnar, vinnuferli og fræðilegar tengingar hennar. Greinagerðin og heimildamyndin eru lokaverkefni mitt til meistaragráðu í hagnýtri menningarmiðlun.
Source: Skemman
Author: Dagný Hulda Valbergsdóttir 1990
Language: Icelandic
Subfield: Museology
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6988118625
Cites: 1
Cited by:
Related to: 10