Það dró mig niður, alveg endalaust, þessi endalausi sársauki. Reynsla og líðan kvenna sem fá verki í geirvörtur við brjóstagjöf
Year: 2009
Type: dissertation
Abstract: Verkir í geirvörtum við brjóstagjöf eru algeng ástæða fyrir því að konur hætta \nmeð börn sín á brjósti. Samkvæmt fyrirliggjandi rannsóknum finna 33-96% \nmæðra fyrir verkjum í geirvörtum á brjóstagjafatímanum. Fáar rannsóknir hafa \nskoðað reynslu kvenna af þessu vandamáli. Tekin voru viðtöl við tíu konur til að \nskoða reynslu þeirra af því að fá verki í geirvörtur við brjóstagjöf. Einnig var \nreynsla kvennanna af meðferðarúrræðum könnuð og skoðað hvort verkir í \ngeirvörtum við brjóstagjöf hefðu áhrif á framvindu brjóstagjafar. Einnig var \nspurt um reynslu af stuðningi ljósmæðra og annarra heilbrigðisstarfsmanna við \nbrjóstagjöf. \nRannsóknin er eigindleg viðtalsrannsókn og var fyrirbærafræði \n(phenomenology) valin sem aðferðafræðilegur grunnur rannsóknar. Mæðurnar \nvoru á aldrinum 18 til 42 ára, flestar giftar eða í sambúð. Fimm voru með \nháskólamenntun, ein með iðnmenntun, ein hafði lokið framhaldsskóla og þrjár \nvoru með grunnskólapróf. Sjö konur áttu börn fyrir og höfðu reynslu af \nbrjóstagjöf, en þrjá konur voru að eignast sitt fyrsta barn. Sjö mæður áttu einbura \nog þrjár tvíbura. \nHelstu niðurstöður rannsóknar voru að konurnar áttu í erfiðleikum með að leggja \nbörn sín rétt á brjóst. Þær fengu áverka á geirvörtur og verulega verki sem leiddu \ntil andlegrar vanlíðanar. Konurnar kviðu fyrir því að leggja börnin á brjóst, \nfundu til þreytu og vanmáttarkenndar. Í sumum tilvikum leiddu verkirnir til þess \nað konurnar hættu með börn sín á brjósti. Konunum reyndist vel að bleyta \ngeirvörtur fyrir gjöf, nota plastfilmu á geirvörtur milli gjafa, nota mexikanahatt á \ngeirvörtur við brjóstagjöf og að nota mjaltavél tímabundið. Konurnar töldu \nfræðslu um brjóstagjöf á meðgöngu hafa verið of litla, en þær voru ánægðar með \nfræðslu og stuðning sem þær fengu á sængurkvennadeildinni. \nEfla þarf fræðslu um brjóstagjöf á meðgöngu og í sængurlegu. Á meðgöngu þarf \nað ræða fyrirhugaða brjóstagjöf við verðandi mæður með það að markmiði að efla sjálfstraust þeirra til brjóstagjafar. Í sængurlegu þarf að kenna konum að \nleggja börn sín rétt á brjóst, því að rannsóknir hafa sýnt að það er öflugasta \nleiðin til að fyrirbyggja verki í geirvörtum við brjóstagjöf.
Source: Skemman
Author: Sveinbjörg Brynjólfsdóttir 1962
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Field: Medicine
Domain: Health Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6988185727
