Work

Þróun atvinnumála fatlaðs fólks : leiðir til úrbóta

Year: 2020
Type: dissertation
Abstract: Ritgerð þessi fjallar um atvinnumál fatlaðs fólks. Farið er yfir sögulega þróun atvinnumála í ljósi íslenskra laga og hvernig þróunin hefur orðið með tilliti til samnings sameinuðu þjóðanna. Einnig er farið yfir ólík sjónarhorn fötlunar til þess að gera grein fyrir hversu mikil áhrif þau hafa á stöðu og tækifæri fatlaðs fólks með tilliti til atvinnuþáttöku þess. \nMarkmið ritgerðarinnar er að skoða þá þróun sem hefur orðið í atvinnumálum þessa hóps og sjá stöðuna í dag, en einnig hvað mætti betur fara í þeim málum í ljósi Samnings sameinuðuþjóðanna og og nýju íslensku lagana. Við vinnslu ritgerðarinnar var aflað gagna á heimasíðum, í fræðiritum, í bókum en einnig er framkvæmdaráætlunin skoðuð. \nNiðurstöður ritgerðarinnar sýna að betur má ef duga skal þegar kemur að atvinnumálum fatlaðra. Íslendingar eru langt á eftir þeim þjóðum sem þeir bera sig jafnan saman við þegar kemur að atvinnuþátttöku fatlaðs fólks. Á heimasíðu Vinnumálastofnunar má glöggt sjá hvernig þjónustunotendum með fötlun er ekki mætt líkt og öðrum. Aðhald við aðgerðir þarf að efla til muna svo að svo að þeim sé fylgt eftir og efla þarf samélagsábyrgð fyrirtækja og vinnuveitenda. Það er hagur allra að hafa fjölbreytileikann á vinnumarkaðinum.
Source: Skemman
Author: Erla Björk Berndsen Pálmadóttir
Language: Icelandic
Subfield: Education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6988211082
Cites: 6
Cited by:
Related to: 10