Work

Þróun máls og læsis tvítyngdra unglinga : íslenskunám í snjöllu námsumhverfi

Year: 2019
Type: dissertation
Abstract: Í þessari ritgerð fjalla ég um starfendarannsókn sem fór fram á tímabilinu frá janúar til maí 2019. Þátttakendur ásamt mér sjálfri voru þrír tvítyngdir nemendur á unglingastigi. Þeir fengu einstaklingsmiðaðar námsáætlanir í íslensku sem tóku mið af fimm grunnþáttum í læsi; ritun, málfræði, hlustun, félagalestur og sjálfstæður lestur. Þessir fimm þættir eru kallaðir Daglega fimman (e. The daily five). Læsisverkefnin voru sett upp í tölvutæku formi í Google Classroom þar sem nemendurnir notuðu smáforritin Kami og Read Aloud. \nTilgangur starfendarannsóknarinnar var að skoða eigin starfshætti með það að markmiði að efla tvítyngda nemendur í máli og læsi í snjöllu námsumhverfi. Von mín var að öðlast kennslufræðilega færni í notkun Fimmunnar við þjálfun lestrar og ritunar. Markmiðið var að kanna hvaða möguleika snjallt námsumhverfi gæfi tvítyngdum nemendum sem þurfa stuðning í íslensku, hvaða áhrif samábyrgð teymis og gott skipulag í einstaklingsmiðuðu lestrarnámi hefði á námsframvindu og finna leiðir til að efla félagslega þátttöku þeirra. Mig langaði að nemendur mínir öðluðust sjálfstæði, sýndu metnað, legðu sig fram í íslensku og tækju framförum í lestri og ritun. \nGagnaöflun var í formi rannsóknardagbókar og verkefna þátttakenda, sem ég hafði aðgang að í Google Drive geymsluskrám þeirra. Í rannsóknardagbók skráði ég upplifun mína og vangaveltur ásamt óskum nemenda minna og námsframvindu þeirra. \nHelstu niðurstöður rannsóknarinnar sýndu að ég lærði að tileinka mér nýja kennsluhætti með því að setja upp snjallt námsumhverfi með samþættingu við Fimmuna. Aðferðirnar nýtast mér áfram í starfi. Þátttakendur öðluðust færni í Kami og Read Aloud sem þeir notuðu samhliða Google Classroom. Í ljós kom að samábyrgð teymis skiptir sköpum þegar unnið er með nemendur sem þurfa sérstakan stuðning í íslensku. Sömuleiðis reyndist það bæði mér og nemendunum farsælt að hafa markvisst skipulag. Efla má félagslega þátttöku tvítyngdra með því að leggja meira upp úr samvinnu í verkefnum.
Source: Skemman
Author: Theódóra Friðbjörnsdóttir
Language: Icelandic
Field: Psychology
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6988247080
Cites: 49
Cited by:
Related to: 10