Work

"Þegar maður skilur eitthvað þá verður það miklu áhugaverðara ..." : upplifun nemenda á unglingastigi af náttúrufræðitímum

Year: 2018
Type: dissertation
Abstract: Markmiðið með þessari rannsókn var að skoða hver upplifun nemenda á unglingastigi er í náttúrufræðitímum og að varpa ljósi á hvað vekur áhuga þeirra. Takmarkið var að geta greint frá upplifun þeirra í því samhengi að skoða hvað það er sem fangar athygli þeirra, hvað það er í kennslustundinni sem þeim finnst skemmtilegt og áhugavert, hvað þeim finnst leiðinlegt, óáhugavert, flókið eða jafnvel erfitt með hliðsjón af námsathöfnum, kennsluathöfnum og kennsluefni. \nÍ rannsókninni var notast við eigindlegar rannsóknaraðferðir þar sem fylgst var með kennslustundum og tekin voru 15 opin, hálfstöðluð viðtöl við níu nemendur, þrjú viðtöl við hvert par eða einstakling úr fimm grunnskólum á landinu auk þess sem þeir skrifuðu hugsanir sínar á þar til gerð eyðublöð eftir eina til fjórar kennslustundir. Skólar og viðmælendur voru valdir með hentugleikaúrtaki og tilgangsúrtaki en skólar voru valdir í samráði við leiðbeinanda og viðmælendur voru valdir í samráði við náttúrufræðikennara þeirra. \nHelstu niðurstöður rannsóknarinnar benda til að margvíslegir þættir í kennslu, námsathöfnum og kennsluefni hafi áhrif á upplifun og áhuga nemenda í náttúrufræðitímum. Upplifun þeirra var í flestum tilfellum góð og fór að miklu leyti eftir viðfangsefnum kennslustunda. Einnig kom í ljós að skilningur virtist hafa mikil áhrif á áhuga sama hvert viðfangsefnið var. Námsathafnir sem helst vöktu áhuga snerust oftast um að taka þátt í verklegum athugunum og vinna með öðrum. Þær sem þóttu síst áhugaverðar snerust oftast um skrifleg verkefni eða að sitja og hlusta eða glósa meðan kennari skrifaði á töflu eða las úr námsbók. \nKennsluathafnir sem þóttu áhugaverðastar snerust helst um að kennari byði upp á verklegar æfingar, væri með sýndartilraunir, fjölbreytta kennslu og að hann útskýrði efnið vel. Kennsluathafnir sem þóttu síst áhugaverðar snerust um töflukennslu og lestur og verkefnavinnu úr námsbókum. Nemendunum virtist þykja kennsluefni því áhugaverðara sem það innihélt fleiri lýsingar á verklegum æfingum en fannst það óáhugavert ef það var of flókið.
Source: Skemman
Language: Icelandic
Subfield: Education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6988251049
Cites: 11
Cited by:
Related to: 10