„Það er einhvern veginn ekki ætlast til að maður sé þarna“: Samspil fötlunar og kyngervis í íslensku skemmtanalífi
Year: 2018
Type: dissertation
Abstract: Í þessari ritgerð er sjónum beint að samspili kyngervis og fötlunar í skemmtanalífi Reykjavíkur. Meðal þess sem fjallað er um eru félagsleg viðmið varðandi líkamlega virkni og fötlun, tjáningu kyngervis ásamt eðli skemmtanalífs. Tilraun er gerð til að varpa ljósi á tengsl þessara atriða til að gera grein fyrir upplifun fatlaðra kvenna á skemmtistöðum. Til dýpri skilnings á því er sú umfjöllun borin saman við fræðilega nálgun á tilgang og væntingar til ófatlaðra kvenna í skemmtanalífinu. Stuðst er við mannfræðilegar kenningar um líkamann, femínískar nálganir á kyn og kyngervi ásamt kenningum um fötlun og líkamlegar skerðingar. Að auki er efnið sett í samhengi við kenningu Michel Foucault um vald og aga sem og fræðileg skrif um opinber rými. Í síðari hluta ritgerðarinnar er fjallað um niðurstöður úr viðtölum við tvær ungar fatlaðar konur og þær studdar með dæmum úr umræðu á íslenskum fréttamiðlum og tískutímaritum. Niðurstöður ritgerðarinnar leiða í ljós að fatlað fólk fær ekki sama pláss sem kynverur í samfélaginu og að ekki er gert ráð fyrir að það stundi skemmtanalíf, þar sem kynhegðun og gagnkynhneigð pörun á sér stað. Fatlaðar konur eru ekki álitnar líkamlegur auður á sama hátt og ungar ófatlaðar konur og mæta því félagslegri og áþreifanlegri útilokun á skemmtistöðum, til dæmis í formi tvíræðra athugasemda, fráhrindandi viðmóti og skorti á aðgengi.
Source: Skemman
Authors: Salka Einarsdóttir 1994, Ásthildur Hanna Ólafsdóttir 1994
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Topic: Gender and Feminist Studies
Subfield: Gender Studies
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6988291790
