Þátttaka barna í viðtölum hjá barnavernd: Réttindi og stefna
Year: 2018
Type: dissertation
Abstract: Þátttaka barna í samfélaginu hefur aukist í takt við hugmyndafræðilegar breytingar bernskufræða. Í stað fyrri hugmynda um börn sem réttinda litla eign foreldra hafa börn öðlast lögverndaðan rétt til að láta skoðanir sínar í ljós og vera virkir þátttakendur í málum sem þau varða. Með auknum réttindum barna hefur barnaverndarlöggjöf þróast og krafan um þátttöku þeirra aukist þegar mál þeirra eru unnin innan barnaverndar. Niðurstöður erlendra rannsókna benda til þess að of oft sé unnið með börn í stað þess að vinna með börnum. Enn fremur þurfi að vekja athygli á því auka að verði þátttöku barna þegar fjallað er um líf þeirra og aðstæður. Viðfangsefni þessa verkefnis er að rannsaka þátttöku sex til sextán ára barna í viðtölum hjá barnavernd í einu af stærstu sveitarfélögum á Íslandi. \nMarkmið rannsóknarinnar var að kanna hvort barnaverndarstarfsmenn vinna samkvæmt samtíma hugmyndum um réttindi og þátttöku barna þegar unnið er með fjölskyldum þeirra. Tilgangurinn er að varpa ljósi á virka þátttöku barna innan barnaverndar. Megin rannsóknarspurningarnar eru tvær: Eru börn virkir þátttakendur í því ferli sem fer af stað þegar mál fjölskyldu er hjá barnavernd sveitarfélagsins? Er stefna sveitarfélagsins til þess fallinn að börn séu virkir þátttakendur í viðtölum hjá barnavernd sveitarfélagsins? Notast var við megindlega rannsóknaraðferð og unnið úr fyrirliggjandi gögnum sem voru dagálar, greinagerðir og stefnur sveitarfélagsins og þau innihaldsgreind. Helstu niðurstöður benda til þess að þátttaka barna hafi vaxið á síðustu árum og börn séu nú í meira mæli þátttakendur í eigin málefnum innan barnaverndar. Börn voru oftar boðuð til viðtals hjá barnavernd árið 2018 en gert var árið 2010. Þó þarf að gera enn betur til þess að uppfylla lagalegar og siðferðislegar kröfur er varða þátttöku barna í málefnum sem þau varða. Niðurstöðurnar geta nýst til að benda á mikilvægi þess að unnið sé í barnavernd út frá nýjustu þekkingu hvers tíma. \n \n \nLykilhugtök: Börn, barnavernd, viðtöl, stefna, þátttaka, réttindi barna
Source: Skemman
Author: Anný Rós Ævarsdóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Sociology and Political Science
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6988326059
