Áhrif samfélagsmiðla á sjálfsmynd mæðra : glansmynd samfélagsmiðla
Year: 2021
Type: dissertation
Abstract: Tilgangur þessarar ritgerðar er að kanna hvort samfélagsmiðlar hafi áhrif á sjálfsmynd mæðra. Hin svokallaða glansmynd er það sem setur fordæmi og óraunhæfar kröfur á samfélagsmiðlum í garð mæðra. Samfélagsmiðlar geta verið af allskonar toga og haft mismunandi markmið. Einstaklingar geta valið hvaða miðla þeir vilja nýta og hvað þeir vilja skoða á sínum miðlum. Áhrifavaldar nýta miðla sína til að auglýsa vörur eða vörumerki og fá í staðinn vörur eða tekjur. Mæður eiga það til að bera sig saman við aðra á miðlum sínum. Þessi samanburður getur verið bæði við aðra í svipaðri stöðu og við þær sjálfar eða áhrifavalda. Samanburðurinn getur verið af jákvæðum eða neikvæðum toga og geta mæðurnar valið hvað þær vilja skoða og hverjum þær vilja fylgja í daglegu lífi. Þar sem allt sem tengist samfélagsmiðlum fer fram í gegnum internetið erum við ekki að hitta einstaklingana augliti til auglitis og getur því verið að það sem við sjáum á miðlunum samræmist ekki alltaf því sem á sér stað í raunveruleikanum. Hægt er að eiga við myndirnar og myndbrotin ásamt því að taka það frá réttu sjónarhorni og með réttri lýsingu. Helstu niðurstöður þessara ritgerðar leiddu í ljós að samfélagsmiðlar geta haft bæði jákvæð og neikvæð áhrif á mæður. Jákvæðu áhrifin eru þegar þeir sem við fylgjumst með á miðlum okkar hafa hvetjandi áhrif á okkur. Þá skapar það hvatningu að vilja gera betur og að skapa sér markmið til að ná því. Neikvæðu áhrifin eru hins vegar þegar við berum okkur saman við aðra og það skilar sér í lélegu sjálfsmati og að mæðrunum finnst þær ekki vera að standa sig nógu vel. Það getur verið slæmt fyrir móðurina að finnast hún ekki vera að standa sig nógu vel og að hún geti gert betur. Samanburðurinn getur hins vegar einnig verið af jákvæðum toga þegar móðirin upplifir að hún sé að gera vel eða að gera betur en einhver annar. Það getur hins vegar einnig verið slæmt, því þá veit hún að það er einhver annar sem er ekki að gera nógu vel og að það dregur úr sjálfsmynd þeirrar móður. \n \nLykilhugtök: samfélagsmiðlar, sjálfsmynd, mæðrahlutverkið, félagslegur samanburður, glansmynd
Source: Skemman
Authors: Anna Katrín Jacobsen, Helena Vignisdóttir
Institution: University of Akureyri
Language: Icelandic
Subfield: Sociology and Political Science
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6989012610
