Work

Áhrif trefjafæðubótarefnisins kítósan á frammistöðu íþróttamanna

Year: 2019
Type: dissertation
Abstract: Íþróttamenn leitast ávallt eftir því að bæta frammistöðu sína í íþróttum til að ná forskoti á andstæðinga sín. Þeir sem stunda markvissa þjálfun leitast oft í að beturumbæta mataræði sitt og er þá algengt að þeir noti fæðubótarefni. Eitt fæðubótarefni sem hefur verið markaðsett til lækkunar á kólesteróli og meðhöndlun offitu er trefjaefnið kítósan sem talið er að hafi góð áhrif á upptöku fituefna í meltingarveginum. Markmið rannsóknarinnar er að að skoða áhrif kítósan á þol, stökkhæð, snerpu og hraðaþol íþróttamanna ásamt því að skoða hvort mismikið magn af kítósan hafi mismikil áhrif á þol. Þátttakendur rannsóknarinnar voru nemendur í íþróttafræði og framkvæmdu þeir eitt þolpróf og þrjú önnur próf sem mældu stökkhæð, snerpu og hraðaþol. Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu að eftir sex vikna inngrip var marktækur munur á stökkhæð (t(4)=-9,476, p=0,01) en ekki fannst marktækur munur á hámarkssúrefnisupptöku (t(8)=1,658, p=0,136), snerpu (t(4)=0,555, p=0,608) og hraðaþoli (t(4)=-1,000, p=0,374). Einnig sýndu niðurstöður að ekki var marktækur munur á hámarkssúrefnisupptöku (f(2)=0,167, p=0,850) eftir fjölda hylkja tekna á dag. Engin neikvæð áhrif fundust á neyslu kítósan ásamt því að stökkhæðin jókst um 16,71cm. Þörf er á frekari rannsóknum þar sem úrtak er stærra og þar sem fylgst er með æfingamagni og æfingaákefð.
Source: Skemman
Author: Þóra Kristín Jónsdóttir
Language: Icelandic
Field: Medicine
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6989058944
Cites: 80
Cited by:
Related to: 10