Work

Áhrif ólíkra umhverfisþátta á frammistöðu fólks

Year: 2024
Type: dissertation
Abstract: Í ritgerðinni var sjónum beint að fyrirliggjandi rannsóknum sem kannað hafa áhrif hins efnislega umhverfis á frammistöðu fólks. Fimm umhverfisþættir voru teknir fyrir; birta, hljóðvist, hitastig, gluggaútsýni og gróður innandyra. Frammistaða einstaklinga er ein af uppistöðum þess að vegna vel í öllum þáttum lífsins. Fjöldi rannsókna hafa sýnt fram á hvernig umhverfi getur haft áhrif á frammistöðu enda er umhverfi okkar fullt af upplýsingum sem vekja upp mismikla örvun. Rétt eins og kenning Yerkes og Dodson heldur fram, batnar frammistaða eftir því sem áreiti verður meira þar til að frammistaða nær hámarki og frekari áreiti valda því að frammistöðu tekur að hnigna. Áhrif hitastigs, birtustigs og hljóðvistar á frammistöðu virðast að einhverju leyti stýrast af örvunarstigi sem umhverfisþættirnir eða áreiti skapa. Rannsóknir sýna að þessir þættir skapa öfugt U-laga samband við frammistöðu. Þá sýndu rannsóknir að þættir eins og gróður innandyra og gluggaútsýni höfðu áhrif á frammistöðu með því að stuðla að sálfræðilegri endurheimt. Slík endurheimt virkjaði ósjálfráða athygli svo dró úr athyglisþreytu og voru því einstaklingar betur í stakk búnir til þess að takast á við verkefni líðandi stundar. Rannsóknir sýndu að það eitt að breyta umhverfisþætti getur breytt frammistöðu. Þessar niðurstöður geta verið gagnlegar fyrir atvinnurekendur, innanhúshönnuði og þá sem vilja hámarka frammistöðu starfsfólks. \nLykilorð: Umhverfissálfræði, Sálfræði, Frammistaða, Birta, Hljóðvist, Hitastig, Gluggaútsýni, Gróður innandyra
Source: Skemman
Author: Rúnar Ísak Björgvinsson
Language: Icelandic
Subfield: Architecture
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6989059146
Cites: 116
Cited by:
Related to: 10