Work

Afleiðingar skólaforðunar

Year: 2024
Type: dissertation
Abstract: Ritgerðin fjallar um skólaforðun og þær afleiðingar sem hún hefur í för með sér. Meginmarkmið ritgerðarinnar er að afla þekkingar á því hverjar væri helstu afleiðingar skólaforðunar. Ásamt því að greina orsakir, birtingarmyndir og úrræði skólaforðunar. Leitast var við svara eftirfarandi rannsóknarspurningu: Hverjar eru helstu afleiðingar skólaskorðunar? \n\tSkólaforðun er hegðun sem kemur fram hjá nemanda sem er með slaka skólasókn. Þegar farið er dýpra inn í hugtakið skólaforðun þarf að skoða marga mismunandi hætti sem fylgja henni. Orsakir, birtingarmyndir og afleiðingar geta gefið skýra mynd á því hvað nemandinn er að ganga í gegnum og hvaða úrræði henti honum best á því stigi skólaforðunar sem hann er á. \nÍ samfélaginu eru nemendur sem eiga í erfiðleikum með að mæta í skólann. Það getur verið miserfitt fyrir hvern og einn, sumir eiga auðvelt með að sækja skóla en aðrir ekki. Orsakir þess að nemandi mæti sjaldan eða ekkert í skólann geta verið af ýmsu tagi. Þegar fyrstu einkenni skólaforðunar birtast er mikilvægt að greina hver ástæðan er, til að hægt sé að bregðast við og takast á við vandamálið sem á sér stað hjá nemandanum. Ljóst er að skólaforðun hefur í för með sér fjölda skammtíma- og langtímaafleiðingar en geta vera mismunandi milli hvers og eins nemanda. Til að koma í veg fyrir alvarlegar afleiðingar er mikilvægt að vera með úrræði sem grípa þessa nemendur. \nHelstu niðurstöður sýna fram á að skólaforðun getur haft í för með sér mjög alvarlegar afleiðingar og grípa þarf til úrræða innan veggja skólans til að koma í veg fyrir að vandinn verði ekki stærri.
Source: Skemman
Language: Icelandic
Field: Psychology
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6989080683
Cites: 17
Cited by:
Related to: 10