Year: 2025
Type: dissertation
Abstract: Markmið þessarar ritgerðar er að varpa ljósi á hver þörfin fyrir áfangaheimili á Íslandi er ásamt því að kortleggja fjölda plássa á hverju áfangaheimili fyrir sig og fjalla um hver markmið þeirra eru. Einnig verður fjallað um þá löggjöf og eftirlit sem snýr að rekstri heimilanna. Ritgerðin er heimildaritgerð þar sem stuðst er við greiningarviðmið, kenningar, rannsóknir og þekkingu á vímuefnaröskun ásamt því að fjalla um áfangaheimili á Íslandi. Niðurstöður ritgerðarinnar eru þær að markmið áfangaheimilanna séu að einstaklingar fái viðeigandi stuðning og aðhald til að aðlagast samfélaginu á ný í kjölfar vímuefnameðferðar. Langir biðlistar eru í vímuefnameðferðir, öll pláss á áfangaheimilunum eru fullnýtt og eru biðlistar á þau flest. Engin gildandi lög eru yfir rekstur áfangaheimila svo eftirliti er ábótavant og getur í raun hver sem er stofnað og rekið áfangaheimili burtséð frá menntun eða reynslu.
Source: Skemman
Author: Linda Pétursdóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Sociology and Political Science
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6989109170
