Work

Áhrif barneigna á stöðu kynjanna á vinnumarkaði. Nægja fæðingarorlofslög til að tryggja jafnrétti á vinnumarkaði eftir barneignir?

Year: 2023
Type: dissertation
Abstract: Barneignir eru mikil og merkileg tímamót í lífi fólks og þarf að huga að miklu þegar kemur að þeim. Markmið ritgerðarinnar er að skoða hvaða áhrif barneignir hafa á stöðu kynjanna á vinnumarkaði. Litið var til laga um jafna stöðu kynjanna og kynskipting vinnumarkaðarins var skoðuð. Fæðingarorlof og ólaunuð vinna sem snýr að heimilishaldi og umönnun barna er einnig til umfjöllunar í þessari ritgerð ásamt fleiri atriðum. Jafnframt var skoðað hvort að fæðingarorlofslög nægi til þess að tryggja jafnrétti á vinnumarkaði eftir barneignir. Helstu niðurstöður eru að fæðingarorlofslög ein og sér nægja ekki til þess að tryggja jafnrétti á vinnumarkaði eftir barneignir. Áhrif barneigna á stöðu kynjanna á vinnumarkaði eru mismunandi eftir því hvort um er að ræða mæður eða feður. Svo virðist sem mæður dragist aftur úr eða staðni á vinnumarkaði með tilkomu barna sinna í heiminn. Aftur á móti eru áhrifin öfug á karlmenn en barneignir hafa jákvæð áhrif á laun feðra. Samt sem áður eru stjórnendur skilningsríkari við mæður en feður þegar kemur að fæðingarorlofstöku með tilheyrandi fjarveru frá vinnu.
Source: Skemman
Author: Katrín Magnúsdóttir
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6989114331
Cites: 15
Cited by:
Related to: 10