Work

Áhyggjur aðstandenda og viðhorf þeirra til valdbeitingarheimilda lögreglunnar

Year: 2023
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Markmið þessarar ritgerðar var að kanna skoðanir aðstandenda lögreglumanna sem er hópur sem hefur ekki verið rannsakaður hér á landi áður, aðstandendur lögreglumanna. Við vildum sjá hvort aðstendendur lögreglumanna hefðu meiri áhyggjur af öryggi lögreglumanna en lögreglumenn sjálfir sem og almenningur og skoðanir aðstandenda gagnvart valdbeitingarheimildum lögreglu. Með því að kanna skoðanir þessa hóps vorum við að vonast til þess að fá nýja innsýn inn í þessi upplifun aðstandenda lögreglumanna sem alla jafna verða fyrir áhrifum lögreglustarfsins óbeint. Spurningalisti var sendur á lögreglumenn í gegnum lokaðan Facebook hóp og þeir beðnir um að áframsenda spurningalistan á sína nánustu aðstandendur. Alls tóku þátt 183 manns. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar voru að marktækur munur var á öryggistilfinningu aðstandenda eftir fjölskyldutenglsum þeirra við lögreglumenn. Einnig var munur á öryggistilfinningu þátttakenda og áhorfs þeirra á fréttaflutning af störfum lögrelgu. Til að setja rannsóknina í samhengi við það sem er að eiga sér stað í samfélaginu og ástæðu þessar rannsóknar skoðuðum við einnig þær breytingar sem hafa átt sér stað í samfélaginu seinustu ár, öryggistilfinningu lögreglumanna, breytingar á valdbeitingarheimildum lögreglu og hvort fjölmiðlaumfjöllun hafi áhrif á kvíða.
Source: Skemman
Authors: Elva Rún Óskarsdóttir 2000-, Eyþór Gunnarsson 1995-, Árni Guðmundsson 1996-
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6989129797
Cites: 26
Cited by:
Related to: 10