Year: 2018
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Þessi ritgerð fjallar um lokaverkefni mitt til meistargráðu í sálfræði frá Háskóla Íslands, Áhrif endurgjafar kennara á námsástundun. Ritgerðin samanstendur af tveimur handritum á íslensku sem verða send til birtingar í íslenskum tímaritum. Ritgerðin er því ekki sett upp sem hefðbundin ritgerð. Fyrri greinin er fræðileg samantekt á rannsóknum sem hafa athugað og fjallað um áhrif endurgjafar kennara á námsástundun. Seinni greinin er rannsókn á tíðni endurgjafar kennara til nemenda í einum skóla á Íslandi. Markmið rannsóknarinnar var að skoða hvernig endurgjöf kennara til nemenda er háttað hérlendis og einnig hvort marktæk tengsl séu á milli endurgjafar kennara og námsástundunar.
Source: Skemman
Author: Birna Pálsdóttir 1986-
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Education
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
SDG: Quality education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6989136066
