Work

Áhrif tálmunar á umgengni við börn á andlega og líkamlega heilsu foreldra : rannsóknaráætlun

Year: 2019
Type: dissertation
Study design: Study Protocol
Abstract: Þessi rannsóknaráætlun er lokaverkefni til BS prófs í hjúkrunarfræði við Háskólann á Akureyri. Foreldraútilokun er ferli eða sálfræðilegt ástand þar sem barn styður sterklega foreldri sem beitir útilokunaraðferðum og hafnar sambandi við hitt foreldrið án réttmætrar ástæðu. Algeng foreldraútilokunaraðferð er tálmun á umgengni við barnið. Fáar rannsóknir hafa rannsakað áhrif foreldraútilokunar á heilsu og lífsgæði hafnaðra foreldra. Á Íslandi er algengi foreldraútilokunar óþekkt og áhrifin sem það hefur á foreldra hefur lítið sem ekkert verið rannsakað. \nÍ fyrirhugaðri rannsókn er áætlað að úrtakið samanstandi af foreldrum sem eru þolendur foreldraútilokunar án lögmætrar ástæðu. Aðferðafræði rannsóknarinnar er tvíþætt, annars vegar megindleg og hins vegar eigindleg. Meginrannsóknarspurningarnar eru tvær: 1. Hefur hindrun á sambandi milli barns og foreldris í formi tálmunar á umgengni við barn áhrif á andlega og líkamlega heilsu foreldra sem eru þolendur þess. 2. Hefur tálmun á umgengni við barn áhrif á lífsgæði foreldra sem eru þolendur? Notast verður við sjálfsmatskvarðann Short Form (36) Health Survey í megindlega hluta rannsóknarinnar og tekin verða einstaklingsviðtöl við foreldra í eigindlega hlutanum. Niðurstöður rannsóknarinnar gætu nýst til þróunar á fræðslu fyrir hjúkrunarfræðinga um einkenni og afleiðingar foreldraútilokunar á þolendur og börn sem getur birst í andlegum og líkamlegum sjúkdómseinkennum. \n \nLykilhugtök: Heilsa, hjúkrun, fjölskylda, skilnaður, lögheimilisforeldri, umgengnisforeldri, foreldraútilokun, tálmun á umgengni.
Source: Skemman
Authors: Christine Björg Morançais, Magali Brigitte Mouy, Sólrún Þórunn Bjarnadóttir
Language: Icelandic
Field: Psychology
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6989140234
Cites: 56
Cited by:
Related to: 10