Að verða pabbi: Staða, hlutverk og upplifun verðandi feðra í barneignarferlinu
Year: 2013
Type: dissertation
Abstract: Hérlendis teljum við okkur búa í jafnréttissamfélagi en niðurstöður hafa sýnt að sú sýn samræmist ekki að öllu leyti heimi meðgöngu og fæðingar. Eftir 50 ára þróun í aðkomu feðra að barneignarferlinu upplifa feður sig enn á hliðarlínunni. \nTilgangur þessa verkefnis er að skoða þróun á hlutverki feðra og lýsa þátttöku þeirra í barneignaferlinu. Upplýsinga var aflað úr rannsóknum frá árunum 1995-2012 er fjölluðu um konur í eðlilegu barneignarferli sem eignast heilbrigð börn. Með barneignaferlinu er átt við tímabil meðgöngu, fæðingar og umönnunar ungabarns. Einnig voru áhrif hjúkrunar á upplifun verðandi feðra athuguð. Þá var kannað hvaða áhrif þátttaka feðra hefði á líðan fjölskyldunnar í heild. \nHeilbrigðisstarfsfólk hefur samþykkt viðveru þeirra í ferlinu en hjúkrun feðra er ófullnægjandi. Fagfólk beinir nær eingöngu sjónum að þörfum móðurinnar og gleymir líkamlegum, andlegum og upplýsingaþörfum föður. Helsta hlutverk feðra er stuðningur við móður, en báðir aðilar vilja vera virkir þátttakendur í öllu ferlinu. Heilbrigðisstarfsfólk kemur ekki til móts við þessar óskir fjölskyldunnar. \nÞað er á ábyrgð hjúkrunarfræðinga að sinna feðrum með fullnægjandi hætti og stuðla að jákvæðri upplifun fjölskyldunnar í barneignarferlinu. \n \nLykilorð: Föðurhlutverk, meðganga, fæðing, þátttaka feðra, upplifun feðra
Source: Skemman
Authors: Monika Schmidt 1977, Sigrún María Guðlaugsdóttir 1987
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Topic: Child Abuse and Trauma
Subfield: Clinical Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6989475470
