Work

B&T: Viðhorf starfsmanna á göngudeildum Landspítala til innleiðingar samræmds ferlis biðlista og tilvísana

Year: 2024
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Formleg innleiðing á samræmdu ferli biðlista og tilvísana hófst í janúar 2023 á Landspítalanum. Nokkrar göngudeildir innan spítalans höfðu þegar innleitt ferlið en markmið verkefnisins er að innleiða það á allar göngudeildir Landspítala. Kynning þess efnis fór fram með myndböndum og var það einnig kynnt á stjórnendafundum. \nÞessi rannsókn fjallar um viðhorf starfsfólks á göngudeildum Landspítala til innleiðingar samræmds ferlis biðlista og tilvísana. Lögð var áhersla á að kanna hvort starfsfólk teldi ferlið vera skilvirkt og hvert viðhorf þeirra væri til ferlisins. Að lokum var skoðað hvernig starfsfólk upplifði stjórnun og undirbúning við innleiðingu á ferlinu og hvaða sýn það hefði fyrir framtíð þess. \nNiðurstöður gáfu til kynna að viðhorf starfsfólks væri mjög ólíkt. Flestir starfsmenn voru sammála um að ferlið hefði sína kosti og galla en væri almennt skilvirkt og betra en þeirra fyrri ferli. Þá voru flestir sammála því að hægt væri að betrumbæta ferlið með einhverjum hætti en áherslur voru ólíkar. \nAð mati starfsmanna var mikilvægt að samræma ferlið og hafa sama ferli alls staðar. Þrátt fyrir það voru misjöfn viðhorf til innleiðingar á eigin deildum sem mátti meðal annars rekja til þess að þriðjungur viðmælanda störfuðu á deildum sem höfðu innleitt ferlið áður en að formleg innleiðing hófst en þá höfðu deildarnar sjálfar sóst eftir ferlinu. Aðrir þættir sem virtust hafa áhrif voru ánægja eða óánægja með fyrri ferli og viðhorf innan deilda. Upplifun af stjórnun og undirbúningi við innleiðingu á B&T var að mestu góð en ekki urðu allir viðmælendur varir við þessa þætti. Þrátt fyrir að innleiðing B&T hafi verið kynnt á fundum og með myndböndum var helmingur þátttakanda ekki meðvitaður um að til stæði að innleiða ferlið á öllum göngudeildum.
Source: Skemman
Author: Vildís Hekla Gísladóttir
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6989496372
Cites: 21
Cited by:
Related to: 10