Work

„Að vera leiðtogi er að vera mannlegur.“ Viðhorf stjórnenda hjá ÍTR til forystu

Year: 2013
Type: dissertation
Abstract: Hugmyndafræði þjónandi forystu rekur upphaf sitt til Robert K. Greenleaf (1904-1990). Þjónandi forysta er hugmyndafræði þar sem leiðtoginn er í fyrsta lagi þjónn þar sem hagur og velferð samstarfsfólks er það sem skiptir máli. Áherslan í þjónandi forystu er þannig fyrst og fremst á mannauðinn. Fyrri rannsóknir á þjónustustörfum í þágu almannahagsmuna, svo sem meðal skólastjórnenda, kennara og hjúkrunarfræðinga, hafa leitt í ljós að þjónandi forysta hefur jákvæð áhrif á starfsánægju, traust og eflingu meðal starfsmanna. Ekki hafa verið gerðar rannsóknir á meðal stjórnenda í frístundastarfi svo vitað sé til, hvorki hér á landi né erlendis. \nMarkmið rannsóknarinnar er að varpa ljósi á viðhorf stjórnenda í frístundastarfi barna og unglinga til stjórnunar og forystu í starfi hjá Íþrótta- og tómstundaráði Reykjavíkur (ÍTR). Til grundvallar voru skilgreiningar á þjónandi forystu samkvæmt framsetningu Kent M. Keith (2008) og Dirk van Dierendonck (2011). Rannsóknarspurningarnar eru tvær: Annars vegar er spurt hvort stjórnendur hjá ÍTR séu þjónandi leiðtogar og hinsvegar, ef svo er hvernig það birtist í störfum þeirra. Rannsóknin er eigindleg og rannsóknargögnum var safnað með viðtölum við sjö stjórnendur í þremur af sex frístundamiðstöðvum ÍTR. Af þeim voru þrír karlmenn og fjórar konur. Viðtölin fóru fram á tímabilinu febrúar – maí árið 2010. Að loknu hverju viðtali var það afritað sem texti, það kóðað og greint í þemu og undirþemu. \nNiðurstöður þessarar rannsóknar gefa til kynna að stjórnendur frístundamiðstöðva ÍTR séu þjónandi leiðtogar samkvæmt skilgreiningum Keith (2008) og Dierendonck (2011). Meginstef og helstu niðurstöður rannsóknarinnar eru að stjórnendur vilja að starfsmenn hafi áhrif á starf sitt, að þeim sé treyst fyrir verkefnum og að allir starfsmenn hafi rödd þegar kemur að ákvarðanatöku. Samvinna, valddreifing, lýðræði og þátttaka starfsmanna er áberandi og stjórnendur vilja skapa starfsumhverfi sem er eflandi fyrir samstarfsfólk. Viðhorf þátttakenda gefur til kynna að þeir hafi hag af því að tileinka sér þjónandi forystu með markvissum hætti. Enn fremur gefur rannsóknin tilefni til frekari rannsókna meðal starfsmanna sem sinna faglegu frístundastarfi.
Source: Skemman
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6989510557
Cites: 17
Cited by:
Related to: 10