Work

Aukið rekstraröryggi íslenska raforkukerfisins með kvikri álagsstjórnun Norðuráls

Year: 2013
Type: dissertation
Abstract: Tilgangur verkefnisins var að athuga hvernig og hvort væri mögulegt að álagsstýra álverksmiðju Norðuráls í truflanatilfellum. \nTilgangurinn með því að álagsstýra Norðuráli er til þess að gefa gangráðum og sjálfvirkum framleiðslu stjórnbúnaði svigrúm til þess að \ntakast á við truflanir þegar álag eða vél/vélar leysa út frá neti. Helstu aðferðir voru að skoða mælingar úr Víðsjá (PhasorPoint) hjá Landsnet og gera sér grein fyrir aflflæði í raforkukerfinu. Einnig var \nmismunandi afriðlabúnaður skoðaður og farið yfir virkni hans og möguleika til kvikrar álagsstýringar. Helstu niðurstöður voru þær að það er mögulegt að álagsstýra álverksmiðju Norðuráls en einnig er hægt að álagsstýra ÍSAL og Fjarðaáli. Æskilegast væri ef hægt væri að álagsstýra öllum álverunum og bæta með því rekstraröryggi íslenska raforkukerfisins.
Source: Skemman
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6989512748
Cites: 6
Cited by:
Related to: 10