Work

Batnandi mönnum er best að lifa : viðhorf til núverandi og fyrrverandi neytenda ólöglegra vímuefna

Year: 2015
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Tilhneiging fólks til að dæma aðra eftir útliti eða útlitseinkennum getur orðið til þess að staðalímyndir verða til og algengt er að búin sé til einfölduð mynd af tilteknum hópum. Fordómar gagnvart minnihlutahópum eins og svörtu fólki, samkynhneigðum og einstak¬lingum sem tilheyra ákveðnum trúarhópum eru algengir og geta þeir haft verulega neikvæð áhrif á líkamlega og andlega heilsu þeirra sem fyrir þeim verða. Niðurstöður rannsókna sýna m.a. fram á tengsl skynjaðra fordóma við þunglyndiseinkenni, streitu, háþrýsting og kransæðastíflu. Markmið rannsóknarinnar var að kanna viðhorf gagnvart núverandi og fyrrverandi neytendum ólöglegra vímuefna. Hannaður var spurningalisti með átján spurningum sem 556 aðilar svöruðu. Í ljós kom að konur telja sig frekar haldnar fordómum en karlar og að mestu fordómarnir eru á Austurlandi en þeir minnstu á Vesturlandi. Meirihluti þátttakenda er þeirrar skoðunar að örvandi vímuefni séu verri en róandi og fleiri aðilar telja neytendur örvandi efna vera hættulega. Flestir telja vímuefnaneytendur ekki vera frábrugðna öðru fólki en þó eru þeir almennt taldir óáreiðanlegir. Einnig kom í ljós að fyrrverandi neytendur ólöglegra vímuefna eru oftast ekki taldir hættulegir eða óáreiðanlegir og flestum þykja þeir eiga skilið annað tækifæri. Í framtíðarrannsóknum væri gott að reyna að ná til breiðari hóps þátttakenda. Einnig væri vert að gera könnun meðal neytenda og þeirra sem hætt hafa neyslu og skoða hvaða viðhorf þeir upplifa frá samfélaginu. Mikilvægt er að draga úr neikvæðum viðhorfum gagnvart minnihlutahópum, en aukin fræðsla til fagstétta og almennings gæti hjálpað til við það.
Source: Skemman
Authors: Hrafnhildur Gunnþórsdóttir 1982, Sigríður Elísabet Stefánsdóttir 1986
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6989549290
Cites: 101
Cited by:
Related to: 10