„Að treysta starfsfólki sínu“: Reynsla stjórnenda af mikilvægi upplýsingamiðlunar á tímum óvæntra áskoranna
Year: 2023
Type: dissertation
Abstract: Á tímum mikilla þjóðfélagsbreytinga og óvæntra áskorana þurfa stjórnendur í auknum mæli að huga að árangurríkum samskiptum og upplýsingagjöf til sinna starfsm anna svo fyrirtækið nái settum markmiðum. Markmið þessarar rannsóknar „að treysta starfsfólki \nsínu“ og að leitast við að skoða upplifun og reynslu stjórnenda af mikilvægi upplýsingamiðlunar á tímum óvæntra áskoranna. Markmið rannsóknarinnar var að veita innsýn inn í þá reynslu og upplifun fimm stjórnenda sem allir hafa það sameiginlegt að hafa leitt fyrirtæki í gegnum tíma óvæntra áskorana. Viðmælendur voru stjórnendur af \nýmsum stigum í íslenskum fyrirtækjum.. . . \nRannsóknarspurningin var „Hver er reynsla stjórnenda af mikilvægi \nupplýsingamiðlunar á tímum óvæntra áskoranna?“ Til þess að svara henni var notast við eigindlega rannsóknaraðferð. Fyrirbærafræðilegt sjónarhorn var notað til þess að greina reynslu og upplifun þátttakenda í rannsókninni (Braun og Clarke, 2006). Lykilhugtök rannsóknarinnar eru: Hvatning, starfsánægja, upplýsingamiðlun, samskipti og liðsandi. \nTekin voru fimm viðtöl við stjórnendur. Allir eru þeir stjórnendur fyrirtækja á Íslandi. Viðtölin voru greind með fyrirbærafræðilegri aðferð. Sú aðferð fjallar um að greina og rannsaka svör viðmælenda með hlutlausum hætti og koma auga á það fyrirbæri sem verið var að rannsaka. \nNokkur áhugaverð þemu og mynstur birtust í niðurstöðum rannsóknarinnar. Við greiningu gagna komu í ljós þemun traust, samvinna, vellíðan og að vera persónulegur. Kjarninn (e. essence) sem birtist í þemagreiningunni var fullkomið traust stjórnenda til starfsmanna sinna sem eykur skilvirkni upplýsingamiðlunar. Niðurstöður gefa vísbendingu um að stjórnendur upplifi mikilvægi þess að stuðla að trausti og samvinnu \nmilli yfir- og undirmanna og að góð upplýsingamiðlun geti aukið vellíðan starfsmanna. Vonast er til að rannsóknin nýtist stjórnendum til þess að geta bætt upplýsingamiðlun milli stjórnenda og starfsfólks innan ákveðins fyrirtækis. \n Lykilhugtök rannsóknarinnar eru upplýsingamiðlun, hvatning, starfsánægja, liðsandi og \nsamskipti.
Source: Skemman
Author: Karen María Gestsdóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Strategy and Management
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6989554761
