Year: 2018
Type: dissertation
Abstract: Tungumálaörðugleikar, menningarmunur og skortur á úrræði koma í veg fyrir örugga og fullnægjandi barneignarþjónustu kvenna af erlendum uppruna og leiða til ójafnaðar innan heilbrigðiskerfisins. Dúlur samfélags kvenna af erlendum uppruna sem túlka (e. community-based doulas who interpret) eru konur af erlendu bergi brotnar, sem geta túlkað og á sama tíma stutt konur af sama uppruna á meðgöngu, í fæðingu og eftir barnsburð. Í öðrum löndum eins og Svíþjóð og Bandaríkjunum eru þessar dúlur mikilvægar í að brúa bilið í barneignarþjónustu á milli kvenna af erlendum uppruna og innfæddra kvenna. Tilgangur þessa fræðilega yfirlits var að svara eftirfarandi rannsóknarspurningum: 1) Hver er hlutverk dúlu í samfélagi kvenna af erlendum uppruna? 2) Hvernig virkar fyrirkomulag dúla í samfélagi kvenna af erlendum uppruna sem túlka? 3) Hverjir eru kostir þess að innleiða slíka dúlaþjónustu fyrir barnshafandi nýbúa? \n \nNotaðar voru tvenns konar aðferðir. Fyrri aðferðin fól í sér að finna lesefni til að afla upplýsinga um dúlur samfélags kvenna af erlendum uppruna sem túlka. Seinni aðferðin fól í sér að öðlast betri skilning á þessari þjónustu með því að taka viðtöl og heimsækja miðstöð í Gautaborg, Svíþjóð þar sem slík þjónusta fer fram. \n \nNiðurstöður benda til þess, að dúlur samfélags kvenna af erlendum uppruna sem túlka auðvelda samskipti, veita menningarnæma fræðslu og umönnun, styðja konur líkamlega og andlega og eru málsvarar kvenna í þeirra samfélögum. Heilbrigðiskerfi erlendis hafa innleitt dúlaþjónustu í barneignarþjónustu með góðum árangri. Kostir þessarar þjónustu eru: Samfelld þjónusta hvað varðar menningu, árangursrík samskipti milli kvenna og heilbrigðisstarfsfólks, meiri líkamlegur og andlegur stuðningur, meiri stuðningur fyrir maka eða fjölskyldumeðlimi, minni líkur á inngripum í fæðingu, lægri keisaratíðni, meiri líkur á jákvæðri fæðingarreynslu, hærri tíðni brjóstagjafar, kostnaðarvirkni í heilbrigðiskerfinu og valdefling kvenna af erlendum uppruna. \n \nÞegar ljósmæður og dúlur vinna saman að því markmiði að veita einstaklingsbundna barneignarþjónustu, geta þær myndað öflugt bandalag sem gæti tekist á við ójöfnuð í heilbrigðisþjónustunni, veitt hágæða umönnun fyrir verðandi mæður og fjölskyldur þeirra, dregið úr kostnaði í heilbrigðiskerfinu og styrkt konur. Þetta samstarf myndi hafa víðtæk jákvæð áhrif á samfélagið. \n \nLykilorð: Dúla í samfélagi kvenna af erlendum uppruna, túlkur, samfelld þjónusta, barneignarþjónusta, konur af erlendum uppruna og mannréttindi.
Source: Skemman
Author: Edythe L. Mangindin 1982
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: General Health Professions
Field: Health Professions
Domain: Health Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6989565989
