Work

Comment mange-t-on un éléphant? Construction d'un plan pédagogique pour la technique tandem.

Year: 2023
Type: dissertation
Abstract: Í þessari meistararitgerð er rannsókn framkvæmd til að finna út hvort það er mögulegt að búa til pedagógíska áætlun fyrir tandem-aðferðina, beint að nemendum á fyrstu önn franskra fræða við Háskóla Íslands. Rannsóknin er framkvæmd með að taka viðtöl við einstaklinga sem deila reynslunni að hafa klárað fyrstu önn franskra fræða í Háskóla Íslands. Aðferðarfræði rannsóknarinnar er megindleg og undirflokkur hennar er ferilsathugun. Evrópski tungumálaramminn var notaður til að hjálpa þátttakendunum að meta hæfni sína og aðrar spurningar í viðtölunum þeirra gáfu þeim tækifæri til að svara á persónulegann hátt. Niðurstöður viðtalanna voru síðan kóðaðar og stór þemu kóðanna voru greind í meistararitgerðinni. Eftir að greiningunni lauk var tekin saman námsáætlun í takt við kröfur þátttakendanna
Source: Skemman
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6990023026
Cites: 12
Cited by:
Related to: 10