Creating a positive work environment : examining the impact of inclusive leadership on organizational commitment via ethical climate
Year: 2023
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Þessi rannsókn miðar að því að kanna áhrif breytanna „leiðtogi án aðgreiningar“ og „siðferðilegt umhverfi“ á skuldbindingu starfsmanna á vinnustað. Eftirfarandi rannsóknarspurning er höfð að leiðarljósi: „Hefur vinnuumhverfi þitt áhrif á líðan í starfi ?“ Til að svara spurningunni var notast við sjálfsskýrslukönnun á kvörðum til að safna gögnum. Gögnum var aðeins safnað einu sinni og notast var við þversnið. Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu jákvætt samband milli breytanna þriggja; leiðtogi án aðgreiningar, siðferðilegt umhverfi og skuldbinding skipulagsheildar. Rannsóknin bendir til þess að það að stuðla að leiðtoga án aðgreiningar geti gegnt mikilvægu hlutverki í sköpun jákvæðs vinnuumhverfis sem ýtir undir skuldbindingu starfsmanna við vinnustaðinn. Þá getur það jafnframt leitt til siðlegs vinnuumhverfis og bættrar frammistöðu starfsmanna. Því má draga þá ályktun að rannsóknin bendi á mikilvægi leiðtoga án aðgreiningar við sköpun jákvæðs vinnuumhverfis sem stuðlar að skuldbindingu starfsmanna við vinnustaðinn. Vinnustaðir sem leggja áherslu á leiðtoga án aðgreiningar virðast ná að skapa vinnuumhverfi sem einkennist af virðingu og stuðningi og þar með aukinni starfsánægju og betri árangri í starfi. \nLykilhugtök: leiðtogi án aðgreiningar, skuldbinding skipulagsheilda, siðferðilegt umhverfi.
Source: Skemman
Author: Valgerður Guðný Ingvarsdóttir
Institution: University of Akureyri
Language: Icelandic
Domain: Social Sciences
Keywords: inclusive leadership, ethical climate, organizational commitment, employee commitment, work environment, organizational justice, organizational climate, job satisfaction, employee engagement, employee well-being, employee motivation, employee recognition, employee empowerment, employee autonomy
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6990131872
